
NÝTT Í XBOX 360 S OG SAMANBURÐUR VIÐ XBOX 360 "old"
Nýja XBOX 360 S (framvegis nefnd sem 360S) vélin er endurhönnun vélbúnaði XBOX360 (framvegis nefnd sem (360ld). Vélin kemur með 250GB hörðum diski og kostar það sama og ELITE útgáfan af 360ld í Bandaríkjunum ($299). Allt inniviði vélarinnar hefur verið endurhannað og móðurborðið heitir Valhalla eins og í 360ld þar sem þekkjum Jasper/Falcon/Xenon. Valhalla gefur kost á 30% meira rými fyrir vélbúnað vélarinnar og nú er CPU/GPU/eDRAM (örgjörvi og minni) eini og sami kubburinn. Þetta gerir það að verkum að vélin er bæði smærri og hljóðlátari heldur en 360ld útgáfur. 250GB harði diskurinn er nú staðsettur undir vélinni í stað ofan á (miðast við að vélin sé látin standa eins og á ofangreindri mynd). Á vélinni eru fimm USB 2.0 tengi og sérstakt tengi fyrir Kinect skynjarann sem gerir það að verkum að Kinect tengist beint í vélina og þarf ekki utanáliggjandi aflgjafa sem 360ld þurfa hins vegar. Ólíkt eldri vélum inniheldur 360S innbyggt þráðlaust 2.4 GHz 802.11 b/g/n netkort og TOSLINK S/PDIF ljósleiðaratengi fyrir hljóðútgang. Í eldri vélum voru síðast nefndu tveir möguleikar seldir aukalega sem viðbætur við vélina. Memory Unit tengin sem eru framan á 360ld vélum hafa verið fjarlægð og í staðinn eru tvö USB 2.0 tengi og því virka ekki gömlu minniskubbarnir frá Microsoft lengur við vélina. Í apríl síðastliðinn kom uppfærsla sem gerir XBOX360 vélum kleift að nota minnislykla allt að 16GB að stærð til að vista efni fyrir vélina eins og t.d. prófíla sem gott er að geta ferðast með á milli til vina sinna. Tveir snertiskynjarar eru framan á vélinni, annar til að opna geisladrifið og hinn til að slökkva og kveikja á vélinni. Þeir gefa frá sér vingjarnlegt hljóð þegar fingur eru settir fyrir framan þá. Hægt er að taka 250GB harða diskinn úr vélinni en hann er ekki samhæfður 360ld vélbúnaði. Aðrar sýnilegar breytingar eru að núna er ein stór vifta í stað tveggja smærri á 360ld. Áferðin á vélinni er glansandi í staðinn fyrir mött eins og á 360ld vélum. Stýripinninn sem fylgir með vélinni er svartur á öllum hliðum og guide-takkinn í miðjunni er með chrome-glansáferð. Ofan á stýripinnanum stendur XBOX360 ólíkt Microsoft á eldri gerðum. Síðast en ekki síst er vélin 90% hljóðlátari en nokkur önnur gerð af 360ld sem ég hef átt. 360S vélin sem ég á er númer 17 í röðinni.
. Samantekt á eiginleikum XBOX 360 250GB S- 250 GB Harður diskur- Innbyggt þráðlaust net- Fimm USB 2.0 Tengi- Hljóðlát-Notar mun minna rafmagn- Sértengi fyrir Kinect- Optical útgangur fyrir hljóð- Snertiskynjarar í stað takka framan á vélinni- Frábær hönnunÁTT ÞÚ AÐ UPPFÆRA Í XBOX360 250GB S?
Í fyrsta lagi ef þú ert nú þegar eigandi að XBOX360 sem er tveggja ára eða yngri er ekki hundrað í hættunni á því að þú sért að missa af einhverju. Jasper vélar eru hljóðlátar miðað við Xenon týpuna sem var í gangi 2005-2007 og er alls ekki líkleg til að fá RROD á næstu mánuðum / árum. Ef þú átt nú þegar Falcon vél sem framleidd er árið 2007 að þá gæti verið kominn tími á að uppfæra því þær eiga það til að fá RROD eftir þrjú eða fjögur ár. Einnig skalt þú athuga að ef það er ekkert að vélinni þinni að þá er í raun engin ástæða til að fá sér nýjustu vélina nema þig vanti þá eiginleika sem 360S býður upp á sem eru þráðlaust net og stór harður diskur. Hins vegar ef hávaðinn í vélinni þinni er að gera þér lífið óbærilegt og eða vélin hefur fengið RROD að þá mæli ég hiklaust með því að þú kaupir þér 360S og það strax!

ÁTT ÞÚ AÐ KAUPA ÞÉR NOTAÐA XBOX360 eða XBOX360 250GB S?
Nýjir kaupendur sem aldrei hafa átt XBOX360 og eru að hugsa um að fjárfesta þurfa að horfa á tvennt. Annars vegar ef verðið er gott á notaðri vél sem framleidd er 2008-2010 og er með Jasper móðurborði á verðbilinu 30-35 þúsund fyrir staka vél að þá eru það góð kaup. Sérstaklega ef horft er á leiki sem seldir eru með notaðri vél á þessu verðbili. Hins vegar ef þú vilt fá það allra nýjasta að þá segir það sig sjálft að þú átt að panta þér XBOX 360 250GB S útgáfuna strax í dag því það er hægt að fá vélina í gegnum vefverslun xbox360.is hér á síðunni fyrir 45-49 þúsund með öllum gjöldum heim upp að dyrum. Verðbilið fer eftir sendingarmáta og gengi gjaldmiðla hverju sinni.
SMELLTU HÉR TIL AÐ VERSLA XBOX 360 250GB S ÚTGÁFUNA
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA HVAÐA SÖLUTILBOÐ ERU Í GANGI Á NOTUÐUM VÉLUM
heimildir: wikipedia.org, tomshardware, google, xbox360.is, amazon.co.uk
Innskrá
Skráning
Hjálp









Efst























