Við viljum þakka meðlimum xbox360.is kærlega fyrir góðar undirtektir á samstarfi okkar við Amazon.co.uk en núna í dag hefur vefverslunin selt yfir 200 vörur til meðlima Íslenska Xbox Samfélagsins á einum mánuði og mun fleiri vörur eru í forpöntun. Það er því ljóst að xbox360.is mun með þessu standa fyllilega undir sér í framtíðinni ef svona vel gengur án innlendra samstarfsaðila.
Eftir að rekstrarkostnaður næst þá munum við efna til veglegrar getraunar fyrir meðlimi síðunnar og hvað er ekki veglegra í verðlaun heldur en gjafakort í vefversluninni?
Samkvæmt sölutölum hefur XBOX360 S 250GB útgáfan selst í tugum eintaka ásamt Halo: REACH en það verður án efa einn heitasti leikurinn í haust. Við mælum með því að fólk tryggi sér eintak sem allra fyrst og spari sér umtalsverðan aurinn þegar kemur að leikjakaupum.
Standard, Limited og Legendary útgáfur leiksins eru nú allar fáanlegar í vefverslun.

EDIT: Nýr TRAILER úr HALO: REACH Campaign
Með kærri kveðju,
DOT COM, B1nn1, Vectro og Six Air.
Innskrá
Skráning
Hjálp









Efst





























