xbox360.is - Tutorials: Xbox 360 leikir
Alan Wake
Þú getur valið um allt að 1080p upplausn á Youtube.
Alan Wake fjallar um samnefnda persónu og eiginkonu hans. Alan Wake er rithöfundur sem hefur átt í erfiðleikum með ritstörf og fara þau saman í ferðalag í þeirri von að vinna bug á vandanum. Leikurinn hefst á mjög áhugaverðum kennsluhluta fyrir leikmanninn. Þér er kennt allt ruglið sem við kunnum nú þegar svo sem að hreyfa sig, miða og berjast en það kom mér á óvart hvað kennsluhlutinn gefur mikið af vísbendingum um söguþráðinn. Þér er gróflega sagt að það eru myrkrar verur bíðandi eftir þér. Eftir kennsluhlutann vaknar Alan (um draum var að ræða) og þú færð að sjá Alan og eiginkonu hans tala saman og það fyrsta sem þú munt örugglega taka eftir er að samstilling vara og talanda persónanna er mjög lélegt, við höfum þó séð það verra í öðrum leikjum. Að öðru leiti eru myndskeiðin inn á milli spilunar mjög vel gerð, fólkið hreyfir sig mjög eðlilega, grafíkin er flott og leikaranir sem ljá persónum leiksins raddir sínar eru mjög góðir. Eftir að hafa fengið lykla að kofanum sem hjónin ætla að gista í er persóna eiginkonunar útskýrð betur á þann hátt að Alan og hún eru hamingjusöm og gefur það sterklega til kynna að það sé eitthvað að fara að koma fyrir hana.
Meðan þú spilar leikinn munt þú heyra röddina hans Alans við og við lýsandi umhverfinu eða aðstæðum og hvernig honum líður. Fyrst hélt ég að þetta yrði frekar þreytt en það kom mér á óvart hvað þetta hjálpar þér að skilja persónuna. Einnig skemmir það ekki að röddinn hans Alans er sami leikari og talaði fyrir Max Payne. Hann er mjög hæfileikaríkur og röddin hans er mjög þægileg að hlusta á. Það má eiginlega segja það sama um alla leikarana. Tónlistin í leiknum er mjög góð, flott lög og umhverfishljóðin eru mjög vel gerð.
Þegar það kemur að bardaga kerfinu voru þeir augljóslega að reyna eitthvað nýtt, allir óvinir sem þú keppir við eru með skjöld sem er búinn til úr myrkri og þú þarft að brjóta hann niður með ljósi. Í gegnum leikinn færðu mikið af mismundandi leiðum til að brjóta niður skjöldinn en það sem þú munt nota mest er vasaljósið þitt. Þegar skjöldurinn er farinn geturðu drepið óvininn með einni af byssunum þínum. Þó svo að þetta sé áhugaverð ný leið til að berjast gerðu framleiðendurnir sér grein fyrir því að þetta yrði endurtekningarsamt svo þeir við og við nota einhverja ástæðu til taka öll vopnin þín í burtu og neyða þig til að berjast öðruvísi en þú ert vanur. Þú ert gjörsamlega neyddur til að berjast á annan hátt og þetta er frábær hugmynd þrátt fyrir að á vissum tímapunktum nálægt endalokum leiksins fer maður að verða pirraður yfir þessu. Allt í allt að þá gerir leikurinn þetta sjö sinnum og fyrir suma er það allt of oft. Fólk gæti lent í því að spara bestu vopnin þangað til allt í einu er þeim kippt af þeim sem pirraði mig mikið.
Leikurinn lítur vel út þrátt fyrir að hann ber keim af því að hafa verið í framleiðslu í níu ár. Grafíkin er ekkert spes samanborið við leiki sem eru að koma út í dag. Það sem ber af eru skuggarnir og lýsingin. Leikurinn leggur mikla áherslu á bardaga milli ljós og myrkurs og sést það í grafíkinni. Þegar þú notar sterkari ljósa vopn lítur það frábærlega út og ég er nokkuð viss um að ég hafi oft setið þarna með opinn muninn starandi á hlutina sem voru að gerast á skjánum. Það er samt smá galli í leiknum hvað stór hluti af honum skeður í skógi, fjölbreyttara umhverfi hefði verið mjög vel þegið en upp á móti því þá lítur skógurinn mjög vel út og hjálpaði mjög í að hræða mann. Það sem mér fannst samt hinsvegar verst í sambandi við skóginn var hvað ég vissi aldrei hvað ég var langt frá endanum. Stundum er þér gefið grófa hugmynd en oftast ertu bara hlaupandi eins og hálviti í gegnum skóg og vonast að eina leiðin sem þú getur hlaupið er í rétta átt.
Ég elska það sem er að gerast í tölvuleikja heiminum í dag, mikið af nýlegum tölvuleikjum hafa verið með mjög góðan og djúpan söguþráð eins og við höfum kynnst í Mass Effect 2, Metro 2033, Bioshock 2 og núna í Alan Wake. Þó svo að söguþráðurinn verði ruglingslegur nálægt endinum að þá leið mér alltaf eins og ég vissi nákvæmlega hvað ég var að gera. Það er mikið af leyndarmálum sem leikurinn segir þér hægt og rólega. Mér leið aldrei eins og ég væri ráfandi um án tilgangs. Það er mikið af áhugaverðum persónum, þar á meðal aðstoðarmaður Alans sem mér, ótrúlegt en satt, fannst nokkuð fyndinn á tímum.
Leikurinn lætur mjög þægilega af stjórn, það er lítið af drasli liggjandi á jörðinni sem Alan getur ekki einfaldlega hoppað yfir eða klifrað upp á, Það er þægilegt og einfalt að skipta á milli vopna og til þess að miða notarðu bara vasaljósið sem einskonar laser þar sem það sem þú ert lýsandi á er alltaf það sem þú skýtur á. Hinsvegar að þá eru inn á milli partar þar sem þú þarft að keyra og ekki bara lætur bíllinn illa af stjórn heldur er myndavélinn algjör martröð, en svo lengi sem þú ert keyrandi beint áfram og horfandi beint fram fyrir þig þá virkar það ágætlega og þú keyrir það lítið í þessum leik að skemmir ekki mikið fyrir.
Það sem mér finnst þeir hafa hinsvegar klúðrað er hryllingsþáttur leiksins. Samkvæmt hulstri leiksins stendur stórum stöfum: "A Psychological Action Thriller" en það var lítið sem ekkert sem var sálfræðilegt í leiknum og voru mjög fá hræðslu móment. Þessi leikur var allan tímann bardagar og ég skal útskýra afhverju. Þegar þú spilar leikinn þá færðu næstum því alltaf viðvörunn þegar óvinur kemur nógu nálægt þér. Viðvörunin er að það er myndavélin dregst inn á óvininn og allt verður hægum hreyfingum (slo-mo) í smá stund. Þetta skemmir vegna þess að þú veist hvar og hversu langt óvinurinn þinn er frá þér og síðan þar sem leikurinn gerir þetta næstum því alltaf þá verður þú aldrei hræddur hugsandi ,,ætli eitthver sé að elta mig?" eða ,,hvar er óvinurinn?" og síðan er það líka erki óvinur minn, heilsa persónunnar hleðst sjálfkrafa, þannig þú verður aldrei hræddur vegna þess að þú átt of lítið af lífi eftir. Síðan til að drepa niður allt stress í sambandi við óvininn þá er hann Alan með astma eða eitthvað álíka vegna þess að hann getur ekki hlaupið meira 15 metra og þá verður hann að ganga hægt til að ná andanum. Þetta myndi kannski virka vel til að stressa mann ef að sekúnduna sem Alan hægir á sér myndi óvinurinn ekki bara birtast fyrir aftan þig og lemja þig.
Stundum varð ég smá stressaður þegar ég átti lítið líf eftir, fáar byssukúlur og er að berjast við þrjá eða fleiri óvini. Leikurinn getur stundum reynst þér mjög ódýr því á tímapunkti birtist óvinur fyrir framan þig og tveir fyrir aftan þig. Ef þú gerir þér ekki grein fyrir þeim sem eru fyrir aftan þig þá eru þeir fljótir að drepa þig. Þetta getur orðið til þess að leikmenn hreinlega gefast upp og slökkva á leiknum.
Í leiknum er mikið af földum hlutum til að taka upp eða lesa og einn af þeim hlutum eru blaðsíður úr bók sem Alan man ekki eftir að hafa skrifað en þær lýsa atburðunum áður en þeir gerast. Þetta er áhugaverð leið til að segja söguna frá öðrum sjónarhornum eða láta mann vita eitthvað sem er að gerast annarstaðar. Í leiknum eru fimm hlutir sem þú getur ,,safnað" og finnst mér þeir hafa misst sig aðeins þegar það kemur að þessum hlutum. Það sem þú getur ,,safnað" eru blaðsíður, útvörp sem þú hlustar á og færð oft hugmynd um hvað er að gerast í bænum meðan þú ert í burtu, sjónvörp sem að sýna þér einhverja skrýtna þætti, það er stundum gaman að horfa á en þau hafa ekkert að gera með söguna eða leikinn, skilti sem þú getur lesið og fengið baksögu bæjarins og að lokum kaffibrúsar... sem að gera ekki neitt. Mér finnst persónulega þeir hafa misst sig aðeins í þessu og finnst að þeir hefðu að minnsta kosti geta sleppt kaffibrúsunum. Þeir voru nú þegar komnir með fjóra hluti til að safna og voru þeir allir með tilgang en síðan troða þeir þessu inn í...
En ég er að leggja of mikla áherslu á neikvæðu hlutina. Leikurinn er með hæfileikaríkt bardaga kerfi, hann lítur vel út, lætur vel af stjórn, er með áhugaverðar persónur og frábæran söguþráð. Yfir höfuð er þetta mjög góður leikur og er ég mjög ánægður hvað þeir ætla að gera næst. Þeir ætla að gefa út fleiri kafla í leikinn sem þú getur keypt á Xbox Live. Ég vona bara að þeir verði nógu langir til að afsaka verðið á þeim.
Graffík - 8
Leikurinn lítur vel út fyrir utan samstillingu vara og talanda persónanna og vinnur frábærlega með ljós. Skógurinn virkar stór og mikill og oft eru settir flottir filterar yfir leikinn sem láta hann virka mjög flottann.
Spilun - 8
Sem hryllingsleikur fær þessi leikur 4 en sem spennuleikur með áhugavert bardagakerfi með flottum vopnum er þessi leikur mjög góður. Söfnun hluta er dregur úr skemmtunargildi leiksins. Það er ekki mikil ástæða til að endurspila leikinn.
Söguþráður - 9
Söguþráðurinn er þar sem þessi leikur stendur sig frábærlega. Persónurnar eru áhugaverðar, söguþráðurinn er skiljanlegur og fannst mér ég alrei missa sjónar af söguþræðinum. Ég vissi alltaf hvað ég var að gera.
Niðurstaða - 8
Þetta er leikur sem enginn xbox eigandi sem sækist í góðan söguþráð ætti að láta fram hjá sér fara. Hinsvegar er þessi leikur góður fyrir meira en bara söguþráðinn sinn, hann er mjög vandaður og mikil vinna hefur farið í hann og er það auðsjáanlegt. Mæli hjartanlega með þessum leik.
Muna að gefa greininni einkunn hér efst á síðunni og gera LIKE á Youtube. Kærar þakkir.
Skrifað af og framleitt af: Abyzzinn © Framsetning: xDOT COMx
Eyþór Viðarsson & Örvar Geir Friðriksson
Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar
Unboxed: Alan Wake Limited
Boxið er frekar þykkt ca. eins og 5x venjuleg Xbox360 hulstur og eins og bók að því leiti að endarnir eru eins og blaðsíður.
Þegar maður tekur svo "coverið" af er maður með kassa sem er með eins áferð og flestar gamlar bækur.
Þar fyrir innan er svo 2x hulstur og 1x bók.
Þarna má sjá þá hluti sem boxið inniheldur.
Til hægri má sjá stóra boxið sem hlutirnir komu í. Þar fyrir ofan eru 2 diskar sem innihalda soundtrackið og svo bonus disc. Þetta hulstur er mjög flott og vandað (má sjá mynd af Alan bakvið diskana).
Í miðjunni er svo pappírs-coverið sem var utanum allt. Vinstra megin er svo The Alan Wake: Files, bókin sem fylgir leiknum. Flett í gegnum bókina verð ég að segja að mér fannst hún heldur döpur. Lítið var um myndir af karakterum eða annað sem heillaði mann við fyrstu sýn. Hinsvegar sá ég að bókin skiptist í tvennt og virtist vera sem lítil smásaga væri í aftari helming bókarinnar. Þarna hefði mátt bæta mun meira við.
Leikurinn er svo í mjög ómerkilegu, svörtu, DvD hulstri og ég skil ekki af hverju ekki var lagt meira í það hulstur eða pakkningu. Það er mjög óspennandi. Ég mun allavega geyma "game disk" í flotta hulstrinu og setja Soundtrackið bara í ljóta DvD hulstrið.
Innihald kassans er í heildina ágætt. Það er mikil vinna lögð í allt detail við pakkningu en leikjahulstur og innihald bókarinnar hefði mátt vera flottara.
Leikurinn Alan Wake er kominn í verslanir! Vil þakka BT -mönnum fyrir hjálpina!
Just Cause 2 myndgagnrýni og grein
Just Cause 2 gerist á eyjunni Panau. Þú spilar sem Rico Rodriguez, hættulegasta vopn leynilögreglunnar og átt að stöðva forseta þjóðarinnar frá því að koma höndunum yfir hættuleg vopn sem hann gæti notað til að byrja stríð. Söguþráðurinn skiptir litlu máli þar sem aðeins er minnst á hann einu sinni í einu fimm mínútna myndbandi í upphafi og enda leiksins. Ég er ekki að grínast þegar ég segi að söguþráðurinn spilar lítinn sem engan part af leiknum. Hann er bara settur niður svo að þú hafir ástæðu til að ganga hamförum um eyjuna og virkar fáránlega vel til þess. Hins vegar var ég búinn að gleyma söguþræðinum eftir hálfrar klukkustundar spilun því það eina sem ég hugsaði um var að rústa sem flestu.
Helstu eiginleikar leiksins eru annars vegar "Sandbox" og hins vegar gripkrókurinn. Landslagið er risastórt en fellur í þá gryfju að umhverfið á það til að virðast tómlegt. Gripkrókinn er hægt að nota að vild til að klifra á hlutum eða hoppa um borð í bíla á ferð. Einnig á maður ávalt nóg af fallhlífum. Þrátt fyrir tómlegt umhverfi oft á tíðum er hægt er að nota "Quick-travel" til þess að ferðast um hratt á milli staða.
Leikurinn gengur beinlínis út á það að skemma allt sem þú sérð og valda sem mestum usla til að svæla forsetann úr felum. Þú veldur usla með því að sprengja upp merktar byggingar og mannvirki. Þetta er mjög skemmtilegt að gera þar sem þú færð fullt af vopnum og farartækjum. Þú getur tekið upp öll vopn sem þú finnur á förnum vegi. Einnig ertu með svartamarkaðs gaur sem þú getur hringt í til að skutla vopnum og faratækjum til þín eða skutla þér á staðsetningu sem þú hefur áður farið á. Gallinn við þetta kerfi er að þú getur bara gert einn hlut í einu hjá þessum gaur, þannig ef þú vilt byssu, handsprengjur og far eitthvert þarftu að hringja í hann þrisvar og verða "one-liners" sem að leikurinn neyðir þig að hlusta á í hvert skipti sem þú hringir í hann orðnir mjög þreyttir. Í upphafi leiksins eru vopnin aumingjaleg sem gerir það að verkum að erfitt er að skemma byggingar. Oftast endar maður á því að henda öllum handsprengjunum sínum á fyrstu mínútunum sem þú ert að valda usla og síðan þarftu annað hvort að panta meira (og hlusta á enn einn one liner-inn) eða þú leitar af byssum á faratækjum, sem gera óhugnanlega mikinn skaða við hliðina á byssunum þínum.
Verkefni leiksins skiptast í "Chaos", "Headquarter" og "Story". Þessi þrjú verkefni endurtekur þú hvað eftir annað þangað til að leiknum líkur. Þrátt fyrir að "Headquarter" verkefnin séu mjög lík að þá er koma hin tvö mjög mikið að óvart enda mikill fjölbreytileiki í þeim og skemmtileg.
Það sem veldur kannski mestum vonbrigðum er að aukaleikararnir sem ljá röddu sína í leiknum eru afburða slæmir. Hins vegar það sem bætir allt upp á jákvæðan er hátt er eðli leiksins en hlutverk hans er að vera skemmtilegur og alls ekki taka alvarlega. Það er þvílíkt fjör að fljúga á milli bæja og sprengja allt í loft upp sem verður á vegi manns, stökkva svo út úr þyrlunni þegar hún er skotin niður og nota gripkrókinn til að næla sér í aðra þyrlu og stela henni, allt í háloftunum. Það er endalaust hægt að dunda sér en það getur komið fyrir að hægist á skemmtuninni þegar maður þarf að fara langar leiðir á milli bæja. Umhverfi leiksins er alltof stórt og það getur tekið allt frá fimm til tíu mínútur að komast þangað sem manni langar til að fara.
Grafík - 8.0
Mjög góð grafík og sjóndeildarhringurinn er mjög djúpur. Byggingar í mikilli fjarlægð sjást vel og gerir það umhverfið raunverulegra.
Spilun - 8.0
Frábær leikur til að spila. Farartækin láta vel að stjórn, vopnin virka vel og það er mjög skemmtilegt að leika sér með gripkrókinn.
Söguþráður - 3.0
Enginn söguþráður í rauninni þar sem sú stutta saga sem spunnin er í leikinn er svo stutt að ekki er hægt að taka hana alvarlega.
Niðurstaða - 7.0
Metro 2033 - Gagnrýni og Video
Takið eftir að greinin er mun lengri en videoið [url="http://www.youtube.com/watch?v=QEoWKyecXU8"]http://www.youtube.c...h?v=QEoWKyecXU8[/url]
Árið er 2033 og mannfólkið hefur ollið kjarnorkuvetri sem geysar á jörðu og ógerlegt er að lifa á yfirborði þess. Mannfólkið hefur flúið neðanjarðar til þess að reyna að lifa af. Þú leikur rússann Artyom sem býr í lestargöngum undir Moskvu eftir að hafa verið bjargað af manni að nafni Alex. Fjöldi fólks hefur komið sér fyrir í göngunum til að forðast dauðann sem bíður þeirra á yfirborðinu og næstu 20 árin lifir mannfólkið þar með því að rækta það sem það getur, skammta sér mat auk þess að haldi úti búfénaði. Matur og vatn er þó ekki það eina sem fólk þarf að hafa áhyggjur af því dýrin sem eftir voru á yfirborði jarðar eru að stökkbreytast og verða í kjölfarið árásargjarnari fyrir vikið. Alex er orðinn tvítugur og árásir stökkbreyttu dýranna eru orðnar það margar að þú neyðist til að sækja aðstoð í neðanjarðar höfuðstöðvarnar. Stökkbreyttu dýrin hafa orðið að nýjum óvinveittum tegundum sem hafa meðal annars orðið góðum vini Artyom að bana. Áður en hann lést bað hann Artyom um að skila skilaboðum ef hann skyldi ekki lifa bardagann af.
Leikurinn byrjar nokkuð hægt, hann gefur þér hugmynd um hvernig heimurinn virkar og hægt og rólega fjölgar hlutunum sem þú þarft að hafa áhyggjur af. Til að byrja með eru það einungis byssukúlur og líf en þegar lengra líður á leikinn þarftu stundum að ganga í gegnum svæði sem eru eitruð og þá þarftu að vera með gasgrímu. Í gasgrímuna þarf síur og þú verður að eiga nóg af þeim. Síðan ferðu að læðast um og reyna að drepa svokallaða ,,Bandits" og þá þarftu að fylgjast með hvar þú gengur vegna þess að það er drasli dreift um alla ganga sem gefur frá sér hávaða ef stigið er á það. Einnig til að bæta ,,sneaking" hluta leiksins ertu með úr sem sýnir þér hversu sjáanlegur þú ert með þremur ljósum. Þegar Artyom ferðast um svæði sem ,,Bandits" eiga þá eru oft gildrum dreift um svæðið sem gerir það ennþá mikilvægara að fylgjast með umhverfinu.
Byssukerfið í þessum leik er mjög áhugavert. Þú ert með sjö pláss sem geyma vopn.  Plássin eru, skammbyssur, rifflar/hríðskots byssur, óhefðbundnar byssur, hnífur, kasthnífar, handsprengjur og festi handsprengjur sem eru beinlínis handsprengjur með nöglum standandi út í allar áttir sem grípur í veggi og skinn. Mikil fjölbreitni er í byssunum í leiknum, sem dæmi þá er ein skammbyssan með rifla skaft og kíkjir sem gerir skambyssuna að þokkalegum sniper. Nokkuð sniðug hugmynd sem notuð er í leiknum er að þér er aldrei gefnar upplýsingar yfir skaðann sem vopnin valda. Þegar versluð eru vopn þá segir búðaeigandinn þér hvort að vopnið sem þú ert með í sama plássi sé betra eða verra. Gallinn við þetta kerfi er það að hann klárar alltaf að tala um hvert vopn og ef þú skoðar annað vopn á meðan hann er ennþá talandi, þá segir hann ekkert um vopnið sem þú skoðar eftir á, þannig þú þarft að hætta skoða vopnið og passa upp á að hann sé búinn að tala þegar þú skoðar vopnið aftur. Sjá hér í myndskeiði:
[url="http://www.youtube.com/watch?v=xrjiXIwtieQ"]http://www.youtube.c...h?v=xrjiXIwtieQ[/url]
Hins vegar ef þú finnur vopn á förnum vegi að þá er enginn seljandi til þess að segja þér hvort vopnið sé betra eða verra en núverandi vopn þitt.
Umhverfið er mjög trúverðugt og lætur mann fá það á tilfinninguna að þetta gæti allt verið hægt ef skynsamlega yrði að þessu farið. Þessi leikur er mjög vel hannaður og er mikil vinna lögð í að láta þér líða eins og að þetta sé raunverulegt og virkar það mjög vel þar sem persónan þín veit ekki mikið meira um heiminn heldur en þér er sagt í byrjunar myndbandinu, þar sem hann fer aldrei út fyrir bæinn sinn. Ástæðan fyrir því að fyrr nefnd byssupláss fóru ekki í taugarnar á mér er vegna þess að hvert pláss er með það margar mismunandi byssur sem hægt er að seta í plássið að þú getur raðað saman næstum því hvernig hóp af byssum sem þú vilt. Gjaldeyrir leiksins getur valdið mjög áhugaverðum deilum í hausnum á manni þegar manni er að ganga frekar ílla á ákveðnum kafla og maður fer að íhuga að seta peninga kúlunar í hríðskots byssuna sína til að geta gert meiri skaða. Það sem nokkuð sniðugt er þó að maður fær aldrei að vita hversu mikið meiri skaða þessar kúlur gera umfram venjulegar kúlur.
Þetta er ekki ,,Sandbox" leikur og eru það vonbrigði en góður söguþráður leiksins bætir upp fyrir það að öllu leyti. Hægt er að klára leikinn á átta klukkustundum ef hlaupið er hratt í gegnum hann en ef allt er skoðað af því sem leikurinn hefur upp á að bjóða að þá er heildar spilun í kringum 12 klukkustundir og jafnvel lengur ef spilað er á hæsta erfiðleikastiginu. Það er áhugavert að það er alltaf bara ein leið í gegnum hvert svæði, hins vegar eru oft gangar sem enda á ,,dead end" og er næstum undantekninga laust eitthverjir hlutir þar, hvort sem það eru skotfæri eða peningar þannig að það er góð hvatning að kíkja í kringum sig. Eitt sem mér finnst samt mjög undarlegt við leikinn er hversu vel maður heyrir í fólki tala. Ég geri mér grein fyrir því að hönnuðir leiksins vildu láta leikmenn heyra það sem fólk er að segja í leiknum þannig að maður missi ekki af áhugaverðum samræðum en stundum þegar maður er inn í bæ þá byrja allir að tala upp í hvorn annan og raddir heyrast það langt að þetta getur orðið mjög óþægilegt.
Leikurinn hefur góða grafík þrátt fyrir að hann gerist mest megnis í myrkri en þetta er ekkert sem við höfum ekki séð áður. Loading tímarnir eru mjög stuttir jafnvel án þess að setja leikinn á harðadiskinn og er það flott afrek þar sem að á milli borða að þá segir Artyum hvað sé framundan og hef ég ekki lent í því að hann klárar setninguna áður en að borðið er byrjað sem er mjög þægilegt því leikurinn stoppar aldrei og hjálpar það mjög í að draga mann inn í leikinn.
Leikurinn er mjög vel hannaður og hefur augljóslega farið mjög mikil vinna í að hanna bæina sem þú kemur við í og að hafa bardagana fjölbreitta með mismunandi vopnum og takmörkuðum skotfæri. Umhverfin eru flott þó svo að maður er mest allan leikinn bara gangandi um neðanjarðargöng þá færðu stundum að fara upp á yfirborðið og eru þau augnablik í leiknum mjög flott og stressandi þar sem maður þarf að vera með gasgrímuna á sér allann tímann. Þú spilar stundum með samherjum og það er lítið hægt að kvarta yfir AI-inu nema í einu mission-i þar sem það var að gera mig brjálaðann, en fyrir utan það atvik eru samherjar manns nokkuð nothæfir. Hugmyndafræðin sem er bakvið sum atvik og skrímsli í leiknum eru fáránleg og hef ég ekki séð svona áhugaverðan heim í langan tíma. Sumar hugmyndir í leiknum fannst mér samt ekki notaðir nógu mikið. Yfirhöfuð er þetta mjög skemmtilegur leikur sem allir ættu að minstakosti að prufa ef að tækifærið gefst.
Grafík: Fallegt umhverfi og persónur sem hegða sér mjög eðlilega. 7,5/10
Gameplay: Gamla FPS formúlan betrumbætt með skemmtilegu vali á vopnum. Með ágætu stealth kerfi og mörgum litlum hlutum gerir þennan leik mjög eftirminnilegan. 8,5/10
Söguþráður: Góður söguþráður og heldur manni við efnið allan tímann. Hinsvegar þá eru persónunnar sem þú rekst á í gegnum leikinn ekki það eftirminnilegar þó svo að þær séu ekki pirrandi. Einnig má leikurinn eiga það að þó svo að leikurinn er ekki með endakall þá er endirinn mjög góður. 7,5/10
Loka einkunn: Áhugaverður söguþráður frá byrjun til enda og bardaga kerfi sem er mjög djúpt og áhugavert. Hinsvegar þá er leikurinn nokkuð stuttur og get ég ekki ímyndað mér að margir myndu spilað hann aftur í gegn. 7,5/10
Bioshock 2 - Video gagnrýni
Ég ákvað að prufa að gera vídeó útgáfu af review-inu sem hægt er að sjá hér fyrir neðan:
<object width="425" height="355"><param name="movie" value="http://youtube.com/v/q70rKRGs0_I"></param><param name="wmode" value="transparent"></param><embed src="http://youtube.com/v/q70rKRGs0_I" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" width="425" height="355"></embed></object>
Bioshock leikirnir eiga sér stað í borginni Rapture. Rapture er borg sem var búinn til af Andrew Ryan, maður sem fannst hvernig öll ríkinn í heiminnum voru rekinn vera vitlaust og ákvað stofnar sitt eigið. Hann býr til borg í hafinu og skýrir hana Rapture, og stjórnar henni með hugarfarinu að hver á skilið það sem hann vinnur sér inn. "Every man is titled to the sweat of his brow" eins og Andrew Rayns orðar það. Þessi hugmynda fræði dregur mikið af fólki til borgarinnar og þar á meðal voru margir vísindamenn. Á hafsbotninum finna þeir fiska sem að eru með efni í sér sem kallast ADAM og getur það efni verið notað til að endur skrifa gena uppbygginguna á fólki og þar með gefið fólki ótrúlega krafta t.d. að geta skotið rafmagni úr höndunum, kveikt eld með því að smella fingrunum eða jafnvel lift og fleygt hlutum með hugarorkum. Hægt er að vinna það aftur úr fólki eftir að það deyr. Til að sækja ADAM-ið úr lýkjunum bjuggu þeir til svokallaðar Little Sisters (litlar systur) sem eru litlar stelpur sem sækjast í ADAM og til að verja þær voru byggðir svokallaðir Big Daddy-s (stórir pabbar) sem að verja stelpurnar. Fólk byrjaði að nota ADAM til að gera marga mismunandi hluti til að hjálpa sér í lífinu en hliðaráhrif sem fólkið vissi ekki af var að efnið er mjög ávanabindandi. Það veldur því að árið 1959 varð borgarstyrjöld í Rapture þar sem fólk berst yfir ADAM. Styrjöldinn stóð yfir í fjóra mánuði, skiljandi borgina eftir hálf ónýta. Eftir þetta er fólk búið að seta það mikið ADAM í sig að það er búið að rústa líkamanum sínum og eru orðnir genabreitt skrímsli sem eru kallaðir Splicers.
Þessi leikur er óbeint framhald af bioshock 1, þar sem þú spilar aðra persónu 10 árum eftir atburð fyrri leiksins. Í þessum leik spilarðu sem einn ef stóru pöbbunum, nema það að þú ert einn af prótó týpunum, fjórða prótó týpan til að vera nákvæmur og því kallaður Delta. Þar sem þú ert prótó týpa ertu ekki eins og allir hinir stóru pabbanir, þú getur notað Plasmid-s og mismunandi byssur og hefur sjálfstæðann vilja af mikluleiti nema það að þú hefur verið andlega bundinn við litlu systur þína þannig að þú munt deyja ef að systir þín deyr. Leikurinn byrjar á því að þú færð að horfa á AWESOME cut scene þar sem þú ert að ganga með litlu systur þinni og það er ráðist á ykkur. þú verð hana eins og stór pabbi gerir best en bardaginn endar á því að þú deyrð. Þú vaknar u.þ.b. 10 árum seinna þar sem lítil systir (ekki þín litla systir) hefur komið DNA þínu í Vita-Chamber (klefar sem lífguðu fólk við ef það dó í slysi (eitt af mörgu hlutum sem að Rapture gatt búið til áður en hún féll)) Þú kemst að því að litla systir þín er ennþá á lífi og er haldinn föst af móður sinni í Rapture. Nú er verkefnið þitt að bjarga henni. Þegar þú færð loks stjórn á kallinum þínum þá kemstu að því að þú lætur alveg eins og stór pabbi, þú ert sterkari, stærri og HÆGARI. Þetta er eitthvað sem að verður mjög pirrandi, mjög hratt. Lukkulega vill til að ekki of langt inn í leikinn færðu Tonic sem að lætur þig ganga á eðlilegum hraða og ég get lofað þér því að þú munt ALDREI taka þetta tonic af. Einnig ertu með Borvéla vopnið sem stóru pabbarnir voru með í fyrri leiknum og er það mjög skemmtileg vopn, þó svo að bensínið í borinn gufar upp þegar þú notar hann.
Eftir smá rölt hittirðu fyrstu splicer-ana þína og lemur þá í klessu og finnur síðan fyrsta plasmid-ið þitt sem gefur þér rafmagns krafta. Á þessum parti færðu í fyrsta skiptið að sjá svokallaðar Big Sisters (stórar systur) þær eru fyrverandi litlar systur sem eru núna búnar að vaxa úr grasi og orðnar mjög snöggar og fimar drápsvélar. Þær fara upp á yfirborðið til að stela litlum stelpum til að breyta í litlar systur til að halda Rapture gangandi og ADAM flæðandi. Þú sérð hana í stutt augnablik þar sem hún stelur lítilli systur sem var að reyna að tala við þig. Þú eltir hana þar til að þú nærð henni í stóru opnu herbergi og færð að berjast við hana og er það enginn leikur. Stóru systurnar eru mjög snöggar, geta hent þér ef þú kemur of nálægt þeim en bara þegar þær eru búnar að lemja þig og taka góðan part af lífinu þínu. Einnig eru þær með plasmid krafta og geta hent eld boltum og lift hlutum til að nota sem skjöld og henda siðan í þig. Þessi bardagar verða bara erfiðari þegar þú fattar að þú ert ógeðslega hægur og getur því varla forðast eld boltana eða hlutina sem hún hendir.
Mig langar ekki að fara lengra því þá finnst mér ég vera farinn að spoil-a leiknum en ég ætla bara að fullvissa þig um að næsta atriði er geðveikt. Hvað get ég sagt um þennan leik? Hann er gull fallegur. Grafíkinn er mjög flott en ekkert sem sem við höfum ekki séð áður, það virðist vera lítill munur á þessum leik og fyrri, en það er ekkert til að skammast sín yfir þar sem fyrri leikurinn var ótrúlegur á sínum tíma. Bardaganir batna mjög þegar þú verður sneggri. Í þessum leik laga þeir það sem klikkaði í fyrri leiknum og er það að þú getur notað plasmid kraftana þína meðan þú heldur á byssu og gerir það bardagana mjög snögga og þægilega. Það er gaman að blanda saman mismunandi byssum og plasmid-um til að gera góð combo. Í þessum leik eru nokkrar nýjar byssur en sumar þeirra eru bara byssur úr fyrri leiknum með nýju útliti. Eins og í fyrri leiknum eru allar byssurnar með 3 mismunandi skotfæri, í sumum byssum er lítill munur á þeim en sumar byssurnar eru með mjög skemmtileg og fjölbreitt skotfæri. Einnig eins og fyrri leiknum er hægt að uppfæra byssurnar og ég elska að það eru færri uppfærslu stöðvar heldur eru uppfærslur þannig þú þarft að ákveða hvaða byssu þú villt uppfæra, þú færð ekki allt. Leikurinn notar Vita-chamber-ana í gameplay-inu. Ef þú deyrð í bardaga þá einfaldlega vaknarðu aftur til lífs í næsta Vita-chamber og kostar þig smá pening og það er ekki of langt á milli Vita-chamer-ana þannig að þú munt ekki þurfa að hlaupa langt til að komast aftur.
Þar sem þú ert stór pabbi þá geturðu tekið að þér að passa litlar systur. Því miður getur þú ekki fengið þær til að koma til þín þannig þú verður að taka þær af stóru pöbbunum. Þegar þú ert búinn að ganga frá stórum pabba, sem er ekkert smá verk, þá geturðu annaðhvort unnið ADAM úr litlu systurinni, þar með drepandi hana, eða gengið með hana um Rapture svo hún geti unnið ADAM úr líkjum. Þetta er skemmtilegur mini-game þar sem þú þarft að verja litlu systurina frá splicer-um sem koma hlaupandi þegar þeir finna lyktina af ADAM. Eini gallin við þetta er að þú getur látið hverja litla systur vinna ADAM úr tveimur líkjum og það eru u.þ.b. 20 litlar systur í öllum leiknum sem þýðir að ef þú villt fá sem mest ADAM þarftu að gera þetta 40 sinnum, og þetta er ekki það skemmtilegur Mini-game. Þegar þú ert búinn geturðu síðan skutlað henni í næsta "Hide-hole" sem er einhverskonar loftræstikerfi sem litlar systur nota til að ferðast um Rapture. Ef þú vilt spila sem góður gaur þá geturðu "Hjálpað" lítillri systur og þá fer hún inn í loftræsti kerfið. Að bjarga litlu systrunum gefur þér minna ADAM en ef þú gerir það nógu oft þá gefa litlu systurnar þér gjöf sem er með smá ADAM og mikið af skotfærum og pening.
Ég skemmti mér konunglega að spila þennan leik, ég fílaði singleplayer-ið mjög mikið en ég vill benda fólki á dálítið. Þegar þið byrjið leikinn þá mæli ég með að opna option menu-inn og slökkva á waypoint arrow-inu. Þegar þú spilar þennan leik þá er mjög gaman að skoða í kringum sig og sjá mismunandi hluti og finna leiðir, en ef þú ert með kveikt á waypoint arrow-inu þá ertu næstum allan leikinn bara starandi á hana þar til óvinir ráðast á þig, þú horfir ekki jafn mikið í kringum þig og dregur það mjög úr skemmtunar gildi leiksins. Það er líka mjög lítið mál að fá upp kortið, það er bara einn takki, og á kortinu er stór stjarna sem er staðsetninginn sem þú ert að fara á og píla sem að sínir hvar þú ert og hvert þú snýrð, einnig er kortið þægilegt í notkun.  Ég persónulega spilaði einnig með Vita-chamber af þannig að dauði er mikið áhrifaríkari. Þetta er ekki eitthvað sem ég tel vera nauðsinlegt til að njóta leiksins, meira að segja tel ég að margir myndu njóta hans minna, en ég mæli mjög með þessu en bara ef þú ert tilbúinn fyrir challenge-ið. Í leiknum er mjög basic auto save kerfi, leikurinn auto save-ar þegar þú byrjar á nýju mappi og þú getur verið að spila sama map-ið í 3 klukkatíma. Þannig ef þú ætlar spila með Vita-Chambers af vertu tilbúinn að save-a mikið eða þurfa að endurspila stóra kafla. Ástæðan fyrir því að ég tel að þetta muni bæta aðeins skemmtunina að spila leikinn er vegna þess að það eru mjög spennandi og erfiðir bardagar í þessum leik og ef þú ert með slökkt á Vita-Chambers þá verða þeir miklu meira spennandi Þú verður mjög spenntur, hræddur og sigurinn er ennþá sætari þegar þú vinnur. En þegar þú ert með kveikt á þeim þá skiftir það engu máli ef þú deyrð vegna þess að þá ræðstu bara aftur á óvininn og þar sem hann fær ekki lífið sitt aftur er bardaginn lítið sem ekkert spennandi þar sem öll ógninn að deyja er farinn.
Söguþráðurinn er góður en ekkert ótrúlegt til að byrja með, hann er nóg til að halda þér gangandi. Hinsvegar þegar það er kannski svona einn þriðji eftir af leiknum tekur söguþráðurinn sig til og verður brjálaður. Ég skal viðurkenna, ég elskaði endirinn, hann dróg mig alveg inn og ég gat ekki beðið að sjá hvað myndi gerast næst. Einnig þá byrja ákvarðanir sem þú tókst í leiknum að skifta máli og breyta hvernig hlutir gerast. Það eru 4 mismunandi endar en þar er mjög lítill munur á tveimur þeirra skilst mér. Það er ein góður, einn vondur og tveir mismunandi millivega endar. Þegar ég kláraði fyrri leikinn þá langaði mig ekki að spila hann aftur sem góður gaur þar sem það breyti bara enda myndbandinu, en í þessum leik tel ég að það séu margir hlutir sem breytast og ég er tilbúinn að spila í gegnum allan leikinn aftur til að fá að sjá þá.
Þetta allt dregur mig að loka punktinum mínum. Þessu leikur er mjög góður, en hann er mjög líkur fyrri leiknum. Það er sama grafík vél, mikið af óvinunum eru úr fyrri leiknum (af 10 óvinunum eru 6 úr fyrri) og flestu plasmid-inn eru úr fyrri leiknum (ég verð samt að hrósa þeim fyrir að breyta uppfærslu kerfinu, í fyrri leiknum gerðirðu bara meiri skaða með uppfærslunum en í þessum þá breyta uppfærslunar því hvernig plasmid-ið virkar). Hinsvegar þá er leikurinn með frábærar persónur sem þú hittir í gegnum gang leiksins (þó svo að caracter-inn þinn er með engann persónuleika), umhverfinn sem þú berst í eru mjög flott og bardaga kerfið er mjög skemmtilegt og fjölbreitt.
Grafík: Leikurinn notaði sömu grafíkvél og fyrri og fær því ekki mikið hrós fyrir það, en leikurinn lítur samt frábærlega út. 7/10
Gameplay: Það er búið að bæta margt frá fyrri leiknum og er því mjög sterkt. 8/10
Aliens Vs. Predator (Video gagnrýni)
ALIENS VS. PREDATOR (XBOX 360)
[url="http://www.youtube.com/watch?v=zGy_uI0Hhmo"]http://www.youtube.c...h?v=zGy_uI0Hhmo[/url]
INNGANGUR
Aliens vs. Predator kom út á Xbox 360, PS3 og PC og er byggður á samnefndum leik sem kom út árið 1999 á PC. Í leiknum færðu að spila sem hermaður, Alien og Predator. Hver og einn hefur sína eigin sögu, eiginleika og vopn. Alien er geimverur sem eru með flugbeittar klær og oddhvassann hala, þær geta klifrað á veggjum og loftum. Predator eru tæknilega vel þróaðar geimverur sem eiga það fyrir lífstíl að veiða og safna framandi verum í alheiminum. Predatorar eru mjög hrifnir af Aliens þar sem mikil áskorun felst í veiðum á þeim. Hermaðurinn er mennskur og tilheyrir hópi manna sem ferðast um geiminn til að stofna nýlendur.
FRAMSETNING
Leikurinn hefst á mjög undarlegan hátt þar sem píramídi er opnaður á óþekktri plánetu. Blá elding skýst út í geiminn og maður skilur ekki upp né niður hvað er í gangi. Það fer svo eftir því hvaða hlutverk þú leikur hvernig sagan þróast og hvað liggur á baki þessa undarlega píramída. Þetta er nokkuð sniðug hugmynd en veldur því þó að manni líður eins og maður viti ekki hvað sé að gerast þangað til að maður hafi leikið öll hlutverkin í leiknum. Ef þú spilar sem Alien þá kemstu að því að þeir fundu Alien drottningu inn í píramítanum og ætla þeir að nota hana til þess að læra meira um Aliens. Í hlutverki hermannsins lærir þú að allt fór úrskeiðis og það eru núna Aliens úti um alla plánetuna. Sem Predator kemstu að því að bláa eldingin var einhverskonar viðvörunarkerfi sem varaði þá við opnun gamals grafreita þeirra. Eins og sjá má þá breyta þessar upplýsingar miklu og maður sér ekki heildarmyndina fyrr en öll hlutverk leiksins hafa verið spiluð. Ég persónulega skil ekki afhverju þeir ákváðu að brjóta byrjunnina svona upp í staðinn fyrir að hafa eina góða langa byrjun sem gerir manni almennilega grein fyrir hvað er í gangi. Hvert hlutverk gerist á mismunandi tímum sem hjálpar framvindu sögunnar mikið og virkar vel.
THE ALIEN
Í hlutverki Alien spilar þú sem eitt af fyrstu Aliens sem sleppur úr rannsóknarstofu þar sem menn voru að rækta Aliens og stuðlar þú að falli mannanna á plánetunni. Það er mjög skemmtilegt að spila í hlutverki Alien sem er útfært á mjög einfaldan hátt. Ef þú missir líf að þá hleðst hún sjálfkrafa, hægt er að klifra veggi, hanga í loftum og fela sig í skuggum. Einnig á að vera hægt að skemma ljós en sökum þess hve mikið er af ljósum í leiknum sem eru óbrjótandi þá gleymir maður því eftir smá stund þar sem lítil nauðsyn er fyrir því yfir höfuð. Það er sérstaklega skemmtilegt að fá að vera skrímslið sem felur sig í skugganum. Aliens er kleift að framkvæma svokölluð „Silent Kill" þegar þú kemur að manneskju að óvöru. Þá ýtir þú á einn takka og Aliens kálar manneskjunni í einu blóðugu höggi. Alien hlutverkið er mjög stutt en er þó mjög skemmtilegt svo maður verður hálf vonsvikinn þegar leikurinn endar.
THE SOLDIER
Í hlutverki hermannsins kemur þú á plánetuna stuttu eftir að Aliens hafa sloppið og það er þitt hlutverk að stöðva þau. Hermaðurinn getur notað byssur en aðeins haldið á tveimur í einu ásamt skammbyssunni. Þetta gerir það að verkum að þú þarft oft að skipta um byssur og hjálpar það til við að stuðla að hryllings tónininum sem leikurinn reynir að skapa í sögu hermannsins. Þetta verður hins vegar frekar pirrandi þegar líður á leikinn.
Þeir byrja á því að búa til nokkuð góðan hryllings tón, þú ert einn og yfirgefinn, bara með skammbyssuna þína og þú ert alltaf að sjá smá hreyfingu á hreyfiskynjaranum þínum. Hermaðurinn fær hreyfiskynjara sem sýnir alla hreyfingu 30 metra fyrir framan sig og þetta er frábær leið til að láta mann vita að það er eitthvað handan við hornið án þess að láta mann vita hvað það er. Það skemmir ekki fyrir að allt sem hreyfist kemur á radarinn þannig að hann nemur oft lyftur og álíka sem gerir mann mjög stressaðan. Hinsvegar, eftir mjög stuttan tíma þá ertu orðinn vanur geimverunum og kominn með það góðar byssur að þú getur venjulega plaffað þær niður áður en þær geta lamið þig og þær sjást það vel á skjánum að hreyfiskynjarinn hættir að vera það mikilvægur. Það drepur mjög hryllings tilfinninguna og nálægt endinum hættir leikurinn alveg að vera óhuggnandi og snýst meira um að skjóta allt sem hreyfist. Saga hermannsins er aðeins lengri en Aliens sagan (rúmar sex klukkustundir) og endar ágætlega.
THE PREDATOR
Í hlutverki Predator kemur hann á plánetuna stuttu eftir sögu hermannsins og á að hreinsa öll ummerki um Predator svo að mennirnir geta ekki notað tæknina þeirra. Sem Predator er lögð mikil áhersla á „Stealth" gameplay. Þú getur orðið nokkuð ósýnilegur en ekki fullkomlega þannig þú getur ekki bara hlaupið í gegnum leikinn. Þú getur notað þetta til að veiða menn og læðast um. Gallinn við þetta er það að þú getur ekki drepið óvini þína í einu höggi nema með því að framkvæma „Trophy Kills". Þau eru mjög lík „Silent Kill" hjá Aliens nema þau taka MIKIÐ lengri tíma. Þau eru það hæg að þú getur ekki einfaldlega Trophy Kill-að óvini sem eru 2 eða fleiri vegna þess að þú ert bara fylltur af blýi ef þú reynir það. Það gerir það að verkum að þú VERÐUR að ná óvinunum einum og mátt aldrei ofmeta sjálfan þig þar sem ef þú gerir óvart „Trophy Kill" þá ertu dauður. Fyrsti helmingurinn af Predator sögunni er næstum eingöngu á móti Aliens og þeir sjá í gegnum ósýnileikann þinn þannig að þessi Stealth hluti af leiknum er alveg ónýtur. Predator hefur fjögur vopn og eitt þeirra er jarðsprengja. Predator sagan er stutt og að miklu leyti mjög pirrandi. Það eina sem virðist hafa verið gert rétt með Predator er hvernig þú getur stokkið um í leiknum og endirinn. Ef haldið er niðri „Left Trigger" kemur upp ljós sem sýnir hvert þú munt hoppa, og þú geturðu hoppað næstum hvert sem er. Endirinn er einnig nokkuð epic en eins og ég sagði, þetta virðist vera það eina sem þeir gerðu rétt fyrir Predator.
Í gegnum leikinn munt þú oft fara á sama staðinn í mismunandi hlutverki, það er nokkuð áhugavert að sjá leikinn frá mismunandi sjónarhornum, en það fær mann bara til að hugsa afhverju leikurinn er ekki lengri þar sem þeir gátu notað sömu svæðin tvisvar og jafnvel þrisvar í sumum tilfellum. Umhverfið í leiknum er nokkuð flott og svæðin nokkuð opin en það er alltaf bara ein leið í gegnum hvert svæði. Einnig er stór galli í sögu hermannsins og Predator. Þegar þú ferð um svæðin þá hefur allt gerst áður en þú kemur og þú hefur lítil sem engin áhrif á söguþráðinn, það er bara eitt tilfelli í sögu hermannsins og Predator sem hafa eitthver áhrif á söguþráð leiksins, annars ert þú bara að hlaupa um að reyna að komast eitthvert.
MULTIPLAYER
Multiplayer í leiknum er mjög áhugaverður. Þar sem það eru þrjú hlutverk þá eru margar mismunandi leiðir til að spila leikinn og einnig eru mörg mismunandi multiplayer tegundir. Það eru þessi venjulegu, Death Match, Team Death Match og Capture The Point en síðan brjóta þeir það upp með tegundum á borð við Infection, Hunt og Species Death Match. Ég spilaði dálítið af multiplayer-inum og komst ég að þeirri niðurstöðu að það eina sem var eitthvað gaman að spila var Infection og Hunt. Leikurinn er með of mikið í gangi í Death Match að maður veit ekki hvað maður er að gera, og með Silent-Kill og Trophy-Kill í Multiplayer þá er aulalegt að sjá raðirnar sem geta myndast þar sem leikmaður á eftir leikmanni eru að reyna að næla sér í eitt ódýrt kill. Ég er ekki að grínast þegar ég segi að ég sá einusinni sex mans gera þetta í röð... við vorum sjö á server-inum. Einnig er stór galli við multiplayer-inn að það fer mjög eftir kortum hvaða hlutverk hefur yfirhöndina, ef það er mikið af opnum svæðum með þaki og dimmt eru Alien með mikla yfir hönd, ef það er mikið af pöllum sem sýna yfir mikið af svæðinu þá fá Predator mikla yfirhönd og ef það er mikið af vel upplýstum göngum þá fá mennirnir yfirhönd. Einnig er ekkert Auto-Balance kerfi í leiknum þannig að ef mikið af fólki í liðinu þínu hættir þá ertu bara screwed þangað til að leiknum er lokið sem er galli yfir höfuð í öllum multiplayer leikjum á console nútildags. Í Hunt þá spila allir hermenn nema einn, hann er Predator. Þetta gerir skemmtilegan leik þar sem Predator-inn getur orðið ósýnilegur og eina sem hermennirnir geta notað til að sjá hann er hreyfiskynjarinn, ef þú drepur Predator-inn þá verður þú Predator og fyrrverandi Predator verður að hermanni. Í Infection þá spila allir aftur sem hermenn nema einn, hann spilar sem Alien. Ef að Alien drepur einhvern þá breytist hann í Alien og leikurinn heldur áfram þangað til að allir eru orðnir Alien. Þetta getur skapað mjög skemmtilegan fíling og maður verður mjög stressaður þegar færri og færri menn eru eftir.
LOKAORÐ
Þessi leikur er með single player sem er allt of pirrandi, multiplayer sem virkar ekki að mestu leiti og nafn með svo mikið á bakvið mig að það pirrar mig að þeim tókst að klúðra þessu svona. Hugmyndirnar eru góðar en framkvæmdin er hræðileg og söguþráðurinn er ekki góður.
Grafík er fín, ekkert sem við höfum ekki séð áður 7/10.
Að spila leikinn er pirrandi, frá Trophy Kills til hámarks tveggja vopna þá eru þeir búnir að gera þennan leik óþolandi í spilun. Eina sem mig langar að gera er að skemmta mér en leikurinn vinnur á svo óþægilegu checkpoint kerfi að ég er hættur að skemmta mér þegar ég kemst loksins í gegnum erfiðan part. Það er ekki einu sinni hægt að crouch-a! 3/10
Söguþráðurinn er mjög grunnur og er varla til staðar. Sem hermaður og Predator ertu bara að ganga um þar sem allt hefur skeð nú þegar og líður þér meira eins og clean-up crew heldur en aðalpersónu í tölvuleik. 4/10
Það hefði kannski verið gaman að spila multiplayer ef þeir hefðu fjarlægt Trophy-Silent-kill en það eru ennþá mörg vopn sem eru one hit kill: heavy attack hjá Alien, hlaðið plasma skot hjá Predator, smart gun hjá hermönnum... Þetta multiplayer er bara mjög bilað yfir höfuð, það eina skemmtilega við hann var mismunandi multiplayer modes. 5/10
Þessi leikur bauð upp á áhugaverðan söguþráð, gameplay og multiplayer. En það sem við fengum var blóðugan og illa hannaðan leik. 4/10 Undir meðalagi
UM GAGNRÝNI
Að lokum langar mig að taka fram að einkunir sem ég gef eru af 1-10 skalanum. Ég notaði áður fyrr 5-10 skalann eins og flestir gera en ég hef verið að nota 1-10 síðan ég byrjaði á video gagnrýnum.
4/10 þýðir að leikurinn er undir meðalagi en ekki hræðilegur, leikurinn er vel spilanlegur og sé ég alveg fyrir mér að sumir myndu hafa gaman af honum en fyrir mig var leikurinn algert klúður.
Skjáskot: Örvar Geir Friðriksson (xDOT COMx)
Grand Theft Auto IV.
Grand Theft Auto IV
Inngangur
Leikir nútímans eru farnir að færast nær og nær raunveruleikanum og tók sú þróun ógnvænlegt og stórt stökk þann 29. Apríl 2008 þegar Grand Theft Auto IV kom út. Heil borg að nafni Liberty City, sem byggð er á New York af mikilli nákvæmni, er leikvöllurinn í þessum glæsilega leik sem hannaður var af Rockstar, nánar tiltekið Rockstar North, sem staðsettir eru í Edinborg í Skotlandi og hafa þeir verið iðnir við kolann í leikjabransanum í hartnær tuttugu ár. Þema leiksins er ekkert annað en ameríski draumurinn. Þetta hugtak er yfirgripmikið og þýðir örugglega mismunandi hluti fyrir hvern jarðarbúa. Karakterarnir í leiknum vilja allir eitthvað meira, eitthvað betra... en stundum er grasið einfaldlega ekki grænna hinum megin við ánna.
Grein
Leikurinn segir okkur sögu Nico Bellic, innflytjanda frá ónefndu austur-evrópsku landi sem er mættur til Bandaríkjanna að hitta frænda sinn Roman. Við fáum að vita það strax í byrjun að Nico finnst lífið í Liberty City klárlega skárra en i heimahögunum, en þar var hann eftirlýstur af skuggalegu fólki, en ástæðuna fyrir því heldur hann fyrir sjálfan sig... allavega í bili. Sagan er dýpri og skemmtilegri en flestar þær sem ég hef komist í tæri við og það er nánast ómögulegt að líka ekki við Nico, sem er karakterinn sem við fáum að stjórna.
Það sem mér finnst æðislegast við persónur leiksins er það að þetta eru ekki lengur vondir eða góðir kallar eins og í gömlu leikjunum, heldur eru margir gráir karakterar. Stundum lendir maður í aðstæðum þar sem maður veit ekki hvort maður sé að gera rétta hlutinn en maður verður samt að gera hann (þið sem hafið spilað leikinn kannist við þetta). Í önnur skipti lendir maður í því að þurfa að taka ákvarðanir um líf annarra sem geta haft dramatísk áhrif á framhaldið. Nico Bellic er virkilega góður og sykursætur náungi, hann er bara nokkurs konar vara, framleidd af umhverfi hans og aðgerðum fólks sem hann tengist. Í leiknum eignast maður vini og ef maður er nógu almennilegur við þá og hittir þá við og við þá getur það komið sér vel, enda ekkert betra en traustir vinir. Auðvelt er að ná í alla í leiknum í gegnum síma sem er nauðsynlegt tæki í þessum leik. Sumir fá væntanlega svona „Sims" fíling þegar þeir fara á stefnumót og halda öllum ánægðum, en ég fékk hann ekki. Það var of mikið af athyglisverðum samtölum og skemmtilegum mini-leikjum til að halda manni ánægðum á leiðinni (og kannski fékk maður að fara inn eftir deitið og fá sér sjóðandi heitt kaffi... ef maður var heppinn).
Hvert einasta cut-scene er alveg magnað og útpælt og er skrifun leiksins alveg frábær. Þessi leikur hefur virkilega skemmtilega karaktera sem maður kynnist vel í þessum senum. Hvort sem það er steraboltinn Brucie (sem er að mínu mati langfyndnasti karakter leiksins) eða reaggie elskandi jamaíkamaðurinn Litli Jacob sem maður skilur ekkert í (þ.e.a.s. fyrr en maður kveikir á subtitles). Þar að auki eru þessar senur þrælfyndnar og það hvetur mann virkilega til að horfa á þær og manni líður eins og maður sé að horfa á einhverja skemmtilega bíómynd með kolsvörtum húmor nema að sjálfsögðu með fjarstýringu í höndinni.
Þó að umhverfið í San Andreas hafi verið eilítið stærra er Liberty City alveg fáránlega vel gerð, og ætla ég að vitna í einhvern snillinginn sem sagði á sínum tíma „Less is more", en í GTA IV eru engin tilgangslaus svæði eins og í fyrri leikjum. Hver einasta gata hefur sitt sérkenni og hvert einasta hverfi er mismunandi. Þar að auki er borgin þinn besti vinur því ef maður er með löggurnar á hælunum er ekkert betra en að geta keyrt á einhvern afvikinn stað og bíða þar til storminn lægir. Það kom mér líka mjög á óvart hvað það er mikið líf í borginni. Maður getur labbað gegnum borgina og hlustað á endalaust af samtölum og aldrei heyrt sama hlutinn tvisvar, bílar lenda í árekstrum, löggur elta þjófa, fólk að rífast úti á götu. Smáatriðin í þessum leik eru alveg mögnuð og maður sér virkilega hvað þetta er góður leikur þegar maður tekur sér tíma í að fara út úr bílnum og skoða hvað er að gerast í kringum sig. Víst við erum komnir útí grafíkmál þá er vert að nefna veðurkerfið hjá þeim sem er alveg magnað. Borgin lifnar alveg við þegar skuggar af hverjum einasta hlut hreyfast með staðsetningu sólarinnar og þetta er með því svalasta sem ég hef séð í tölvuleik.
Allir sem hafa nokkurn tímann spilað Grand Theft Auto leik kannast við verkefnin sem maður fær. Drepa þennan, keyra þessa, gera þetta og hitt. Hins vegar er maður alltaf á mismunandi stöðum sem gerir þetta alls ekki leiðinlegt og maður getur varla beðið eftir að hoppa í næsta verkefni. Það er reyndar búið að auka aðgengileikann með fríum Taxa-ferðum og replay mission fítusnum sem bæta mjög mikið úr tímaeyðslunni sem maður fann mikið fyrir í fyrri leikjum.
Skotkerfið í fyrri leikjum gerði marga gráhærða en það er búið að bæta mjög mikið úr því. Cover kerfið gerir gæfumuninn auk nýrrar nálgunar á miðunaraðferðum sem gera skotbardaga bæði skemmtilega og áhugaverða. Hægt er að fínmiða á sérstaka líkamshluta eftir læsingu og ýmsir aðrir fítusar sem eru mjög þægilegir. Hins vegar getur þetta kerfi verið algert PAIN í þröngum göngum sem getur verið sérlega óþægilegt þegar óvinurinn kemur hlaupandi með haglabyssu (ég er búinn að eyða alltof miklu í hjúkrun vegna þessa!). En yfir allt er þetta mjög mikil framför frá fyrri leikjum og gerir leikinn bara ennþá skemmtilegri. Það er mikið um slagsmál og skotbardaga og því um að gera að læra vel á þetta kerfi. Auk þess er animation-ið í Euphora leikjavélinni alveg magnað sem býður uppá spennandi bardaga sem eru aldrei eins.
Hljóð leiksins er alveg frábært. Er þá hægt að nefna allt talað mál og öll hljóð, svo sem árekstrar o.fl. sem er alveg frábærlega hljóðsett. Maður eyðir miklum tíma í bíl og þá er ekki verra að hafa alla þessa frábæru tónlist sem er í útvarpinu, allt frá elektrótónlist með Justice og epískum rokkslögurum með ELO, til gargandi Indie rokks og Jazz frá þeim tíma þegar fólk kunni á hljóðfæri (eins og segir á stöðinni). Auk þess er mikið um talað mál og er hægt að hlæja endalaust að vitleysunni sem kemur í útvarpinu en eins og ég minntist á áðan er húmorinn aldrei langt undan í Grand Theft Auto seríunni. Ég hef stundum lent í því að þurfa að restarta missioni og félagar manns í verkefninu tala nánast aldrei um sama hlutinn á leiðinni á áfangastað.
Það er hægt að horfa á sjónvarpið og fara á internetið og það er alveg ótrúlegt magn af efni sem er hægt að sjá og skoða. Uppistanda- og Kabaret-klúbbar hafa fullt af efni og maður sér nánast aldrei sama hlutinn tvisvar. Auk þess er að sjálfsögðu hægt að fara á strippbúllur eða hella sig blindfullan á bar og það er alveg ótrúlega gaman að keyra fullur... alveg þangað til löggan fer að elta mann. Hægt er að fara í keilu, pílu og pool og eru þessir mini-leikir það góðir að þeir gætu í sjálfu sér gefið þá út á Arcade. Alveg magnað hvað þeir lögðu mikið í fjölbreytileika og smáatriði leiksins um leið og húmorinn er alveg yndislegur.
Fjölspilunarhlið leiksins er líka mjög góð og keyrir mjög smooth þrátt fyrir að 16 leikmenn séu að leika sér í borginni. Fjölbreytnin er alveg með ólíkindum og eru fullt af skemmtilegum leikjum til að spila. Svo er auðvitað hægt að leika sér í borginni með vinum sínum og bíður það uppá skemmtilegar og eftirminnilegar stundir. Partý kerfið sem flestir ættu að vera farnir að þekkja virkar mjög vel og það er rosalega gaman að spila leikinn þegar maður er í hóp með skemmtilegu fólki.
Lokaorð
Það væri hægt að skrifa heila bók um þennan leik en ég ætla að láta þetta nægja, en ég er búinn að reyna að halda aftur af mér með skrifin svo einhver nenni að lesa þetta. Þó að leikurinn sjálfur sé alveg frábær er það dýpt söguþráðarins sem stendur uppúr hjá mér, enda er hann orðin klassík strax, og ég er ekki einu sinni búinn með leikinn (no offence but I'm a busy man). Nálgast ég þó endann óðfluga, og er farið að hlakka í manni að sjá hvernig þetta kvikindi endar. Ég er búinn að vera að reyna að prufa allt sem ég get á leið minni gegnum leikinn en maður er þó alltaf að upplifa eitthvað nýtt og skemmtilegt. Ótrúlegt en satt þá er eini alvarlegi gallinn sem ég hef fundið við þennan leik miðunarkerfið í þröngum rýmum. Ef miðað er við aðra leiki sem eru nýkomnir á markaðinn er þessi á toppnum og vel það og verðskuldar því alveg magnaða einkunn. Ekkert er fullkomið en á þessum tímapunkti í leikjabransanum er þetta ansi nálægt því og ef þessi leikur væri listaverk eða þrjátíu mínútna tónverk þá má ekki draga það niður fyrir lélegt burstastrok eða eina feilnótu.
Einkunn
Spilun:         	9.9/ 10
Grafík:         	10 / 10
Hljóð:          	10 / 10
Lengd/saga:   10 / 10
Framsækni: 	10 / 10
Guitar Hero: World Tour vs. Rock Band 2
Upphaf spilunar
Það var fyrst þegar Guitar Hero II kom út á Xbox 360 sem ég fékk áhuga fyrir þessari tegund af tölvuleikjum. Satt að segja, hefði það ekki verið fyrir áhuga SiggaG á þessum leik, þá hefði ég líklega ekki verið mættur strax á útgáfudegi til að fjárfesta í þessu undri. Leikjaspilun mín breyttist töluvert eftir að kynnast þessari tegund leikja, allt í einu vorum við vinirnir farnir að hittast á föstudögum og var það gert vikulega til þess eina að sötra saman og spila Guitar Hero. Þess má geta að áður, þá snérust fyllerí alltaf um eintómt sötur og svo að fara niður í bæ. Þetta breytti sem sé töluverðu og buddan tók líka stórt skref upp á við. Þegar Guitar Hero III leit dagsins ljós þá var hans beðið með óþreyju af vinahópnum og fengum við prómó-eintak af honum fyrr. Við kölluðum til þá bestu úr Guitar Hero bransanum sem við vissum af á xbox360.is og úr því varð vinátta við t.d. Cyrus, Gauja og Killer Brick en það er ólíklegt að við hefðum kynnst ef það hefði ekki verið fyrir tilstilli þessa leiks.
Nýjir titlar - meiri fjölbreytni
Jólin 2007 sagði Cyrus mér að hann væri búinn að panta Rock Band og vorum við spenntir að sjá hvernig hann væri í samanburði við gamla góða Guitar Hero sem við vorum allir farnir að dýrka. Það var því mikil gleði þegar Cyrus fékk þennan risa pakka á Þorláksmessu og við tengdum strax og fórum að spila. Strax tókum við eftir því að þetta var greinilegt stökk fram á við enda gátu fleiri tekið þátt og gerðar voru auknar kröfur þar sem nú var hægt að syngja og spila á trommur en í Guitar Hero var aðeins möguleiki á því að vera á gítar og bassa/rythm. Viðmótið gegn Guitar Hero breyttist strax, allt í einu var Guitar Hero conceptið orðið kjánalegt að mörgu leyti.
Þegar Guitar Hero: Aerosmith kom út sumarið 2008 þá fékk hann litla sem enga spilun enda var ekki upp á marga fiska til að byrja með. Þegar ég frétti svo af því að Rock Band 2 væri á leiðinni þá gat það ekki komið upp á betri tíma því ég var einmitt á leiðinni til Bandaríkjanna vikuna eftir að hann yrði gefinn út. Það var því mikil eftirvænting eftir að komast yfir hann. Gallinn við Rock Band var þó sá að hann var gefinn út mikið fyrr í Norður-Ameríku heldur en Evrópu og sama sagan var um Rock Band 2 þannig að ég átti engra kosta völ heldur en að versla mér bandaríska Xbox 360 vél til þess eina að spila hann á. Því sé ég ekki eftir. Á sama tíma og ég heyrði fyrst af Rock Band 2 þá vissi ég að Guitar Hero World Tour væri í framleiðslu en hann átti að vera nokkurn veginn eftirherma af Rock Band. Það var orðin mikil spenna meðal okkar að sjá hvor væri betri. Nú er það hins vegar ljóst hvor þeirra hefur vinninginn.
Harmonix / Red Octane / Neversoft / Activison / MTV Games / EA Games
Hvað eiga þessi fyrirtæki sameiginlegt? Jú, þau eru öll að berjast fyrir mestri hylli í tónlistarleikja bransanum og það er mikið kappsmál hverjir ná yfirhöndinni en á endanum snýst þetta um milli þeirra hvernig þeir geti lifað saman á sama markaðinum. Fyrst um sinn þá var það aðeins Guitar Hero en það voru Harmonix og Red Octane sem gerðu hann í sameiningu þar sem Red Octane hafði þróað gítarstýritækin og Harmonix, fyrirtæki tónlistarmanna og forritara, var fengið til þess að hanna leikinn í kringum stýritækin. Saman gerðu þessi tvö fyrirtæki Guitar Hero, Guitar Hero: Rock of the 80's og Guitar Hero 2. Eftir gott gengi Guitar Hero þá vildi Harmonix stíga næsta skref sem þeir gerðu með Rock Band en Red Octane sleit samstarfinu við þá og voru keyptir af Activision sem á núna Guitar Hero leyfið. Activision lét Neversoft í verkið en þeir höfðu áður gert Tony Hawk hljólabrettaleikina. MTV Games og EA Games keyptu 50/50 í helming Harmonix og studdu við þróun Rock Band og skipti það sköpum að hafa MTV á bakvið sig því það opnaði aðgengi Harmonix að fleiri leyfum á tónlist sem nú er að finna í Rock Band. Eftir að hafa spilað leikina er einn sjáanlegur munur strax við fyrstu sýn en það er sú staðreynd að Harmonix býr til leikinn vegna áhuga síns á tónlistinni en Neversoft er eingöngu að hann leikina til þess að mjólka Guitar Hero leyfið peningalega séð fyrir Activision eins og sjá má á næsta ári þegar stefnan er að gefa út sex Guitar Hero leiki.
Framför Rock Band 2 yfir Rock Band 1
Það hefur ekki farið framhjá neinum, sem spilað hafa Rock Band, að það var margt í Rock Band sem betur hefði mátt fara og oftast er það raunin þegar ný hugmynd er þróuð yfir í tölvuleik þótt Harmonix hafi tekist mæta vel með Rock Band. Rock Band 2 er hins vegar ekki nema einn risastór plástur sem hefði að öllu jöfnu getað verið update fyrir Rock Band 1 en með því að koma með 87 ný lög sem öll eru master útgáfur þá var engin ástæða til þess að kvarta. Lítið gjald fyrir stóra betrumbót og mikinn fjölda laga svo má ekki gleyma öðrum 20 lögum sem komust ekki fyrir á disknum sem Harmonix gaf út í nóvember 2008 fyrir þá sem keypt höfðu RB2. Harmonix bauð einnig eigendum RB1 að flytja öll lögin úr leiknum að undanteknum fáeinum yfir í Rock Band 2. Þá er einnig með talið öll þau lög sem hægt var að kaupa aukalega á Marketplace en þau virka fyrir báða leiki og virka enn fyrir gamla þrátt fyrir að Rock Band 2 sé kominn út. Heildarfjöldi laga í Rock Band 2 verður því yfir 500 talsins um áramót 2008/2009!
Í RB2 eru margir nýjir eiginleikar þótt að grunnspilunin sé að mörgu leyti eins. Leikurinn er mun erfiðari en fyrirrennari sinn enda voru margir sem kvörtuðu yfir því hversu auðveldur RB1 var. Það er ekki raunin í dag með RB2, langt því frá. Harmonix hlustaði á aðdáendur RB1 og gerði sitt besta til þess að bæta það sem þeir fóru fram á og þeir stóðu við umbeðnar óskir til fulls!
Framför Guitar Hero III yfir í Guitar Hero World Tour
Framförin er nánast engin ef marka má hvaðan hugmyndin að hinum síðarnefnda kemur. Nú er hægt að sjálfsögðu að spila trommur og syngja en það er alls ekki nóg til þess eina að henda inn í nýjan leik með fullt af lögum. Yfirbygging leiksins er nánast eins og manni líður eins og maður sé að spila RB1 og með fleiri göllum en voru í raun og veru í Rock Band 1 til að byrja með. Miðað við hvað ég sá mikla umfjöllun um GH: World Tour hefði ég áætlað að Neversoft hefði lært af mistökunum sem voru Guitar Hero 3. GH3 þótti mér mjög góður áður en ég prófaði RB. Eftir það spilaði ég aldrei GH leikina aftur. En eins og áður sagði þá var sú von að GHWT yrði mikil framför á við GH3 að vonbrigðum strax við fyrstu spilun. Stærsti kosturinn við GHWT er sá að öll lögin eru mun spilanlegri heldur en í GH3 og mörgum finnst mistökin þar hafa verið að of mikið af frægum lögum voru í leiknum sem kjánalega erfitt var að spila og í sumum tilfellum nánast vonlaust, nema auðvitað að vera róbóti. Ég spilaði í gegnum GHWT á Expert og feilaði aðeins á introinu á Hot For Teacher sem er síðasta lagið í Band Tour. Þannig að GHWT er á við HARD í RB2.
Grafík Rock Band 2 vs. Guitar Hero World Tour
Hvorir tveggja þessa leikja eiga ekki skilið mikla kröfur um grafík en aðalatriðið er að hún má ekki vera kjánaleg. Hægt er að búa til hljómsveitarmeðlimi í báðum leikjunum og ráða útliti þeirra. Talsvert fleiri möguleikar eru í GHWT og er það eingöngu vegna þess að forritið á bakvið mótun hljómsveitarmeðlima er tekið beint úr Tony Hawk leikjunum. Stórt atriði er einnig hvernig það er fyrir þann sem horfir á skjáinn á meðan aðrir eru að spila leikinn en þar er oft viðkomandi ekki að fylgjast með nótunum á skjánum heldur tónleikunum sem eru í gangi fyrir aftan. Harmonix lagði greinilega mikinn metnað í það að leikstýra hverju lagi fyrir sig eins og um væri að ræða alvöru tónleika. Hægt er að sjá nánast nákvæmar fingrasetningar á strengjum hljóðfæranna og meira að segja trommarinn ber í rétta trommu í hverri nótu, jafnvel þegar leikmaður slær frjálst á trommurnar þá slær trommarinn á sviðinu í sömu trommur. Í Rock Band 2 er einnig sá möguleiki fyrir hendi að hafa „Juke Box-mode" en það er ekki gert með þeim hætti sem áður var haldið og átti að vera möguleiki í leiknum. Til þess að geta horft á leikinn sem tónlistarvideó án þess að spila þarf að tengja míkrafón + controller, stilla á performance mode og no-fail í extras en þá hverfa nóturnar af skjánum og ekki er hægt að mistakast lagið. Lagalistinn er svo settur saman og maður nýtur þess að hlusta á tónlistina í leiknum og það er einmitt þá sem maður tekur eftir þeirri gífurlegri nákvæmnisvinnu sem Harmonix hefur sett í þetta smáatriði.
Raunin er hins vegar allt önnur í GHWT en þarna er ekkert hugsað út í þetta og einfaldlega meikar ekkert sens hvað fólkið er að gera á sviðinu, lip-sync er reyndar á söngvaranum í GHWT og á það reyndar við báða leikina en ef maður ber leikina saman með þetta smáatriði í huga, sem mér finnst reyndar mjög stórt atriði, að þá á Rock Band 2 klárlega vinningin þar sem manni líður eiginlega svolítið kjána- og barnalega að horfa á það sem er að gerast í GHWT. Svo má geta þess að það enn þetta GOD vs DEVIL dæmi í gangi í GHWT sem ég hef aldrei skilið hvers vegna þarf að tengja við tónlist og hljómsveit á tónleikum. Endilega fræða mig um það ef þið hafið svarið. Grafíkin í GHWT er hlægilega slæm í samanburði við Rock Band 2. Í RB2 fær maður eðlilegri tilfinningu fyrir því að maður sé á tónleikum og sérstaklega vegna þess að nótu-chartið er örlítið gegnsætt en ekki í GHWT. GHWT reynir að bæta þetta upp með því að hafa meira action í gangi á milli laga eins og með því að láta flugelda springa yfir höllinni, hafa tónleikana á flugmóðuskipi eða heima hjá kölska þegar maður spilar lagið The Joker jafnvel láta kvikna í sviðinu?!?. Hálf kjánalegt allt saman. Hljómleikahallirnar í Rock Band eru allar gerðar í háði af alvöru hljómleikahöllum sem fyrirfinnast í heiminum og þar á meðal Laugardalshöllinni í Reykjavík sem heitir þarna Klauradalshöllin (man ekki nákvæma stafsetningu nafnsins) þótt ég sjái lítinn samanburð en ég sé hins vegar svip á milli Madion Square höllinni í leiknum og þeirri sem fyrirfinnst í raunveruleikanum.
Menu kerfið í GHWT eru einföld spjöld og greinilega mjög lítið lagt í það ólíkt Rock Band 2 þar sem mikil hreyfing er á kerfinu, miklar myndskreytingar og þegar þú ferðast á milli borga þá tekurðu eftir greinilegum ,,landmarks" í hverri borg sem þú myndir þekkja úr ferðabækling. GHWT er í rauninni eins og eitt stórt teiknimyndablað og myndi betur heilla unglinga eða börn.
Hljóðgæði og tónlist
Þetta er það sem skiptir mestu máli í leikjunum. Hverjir verða með hvaða hljómsveitir og hvaða lög verða fyrir valinu. GHWT toppar Rock Band 1 með einu lagi aukalega á disknum en þá er ekki tekið inn í myndina þau 20 lög sem Rock Band 2 gefur út ókeypis eftir útgáfuleiksins. Þannig að GHWT vantar á endann 19 lög upp í. Ekki að það skipti máli því reglulega eru gefin út lög á Marketplace og það eru gæðin sem skipta máli ekki fjöldinn. Ef þú ert að fara frá Rock Band yfir í GHWT þá tekurðu strax eftir því að gæðin á lögunum eru mun verri í GHWT. Þrátt fyrir að GHWT segist vera með master útgáfur af sömu lögum og eru í Rock Band 2 að þá hljóma þau öðruvísi og sumum hljóðfærum hefur verið breytt. Í mörgum tilfellum eins og t.d. í Livin' On a Prayer með Bon Jovi þá er búið að bæta inn lokakafla sem fyrir finnst ekki í neinni einustu útgáfu sem ég hef nokkurn tímann heyrt af þessu lagi. Ég fór á stúfana og leitaði mér upplýsinga um þetta og komst að því að Neversoft höfðu bætt þessu inn ,,just-for-the-fun-of-it" en það er í rauninni ekkert skemmtilegt við það. Þetta breytir ímynd lagsins til hins verra, fólk vill spila lögin eins og þau eiga að vera. Ég sé ekki tilganginn með þessu. Ég tek það jafnframt fram að ég prófaði báða leikina í sömu vél og alltaf í gegnum sömu tengingu hljóðs og myndar. Það er sérstaklega mikill munur á gæðum laganna á milli leikjanna, í GHWT finnst maður eins og maður sé að hlusta á gæði á borð við mp3 þar sem aldrei er almennilega hægt að greina á milli rása ólíkt RB2 þar sem gæðin eru vissulega í fyrirrúmi og gott er að aðgreina. Ef þú ert t.d. á bassanum að þá nærðu mun betur að heyra bassann í laginu í stað þess að í GHWT að þá er það mjög erfitt og nánast ómögulegt nema þú sért í sóló. Svo skemmir ekki fyrir að í RB2 þá eiga áhorfendurnir það til að syngja með ef bandinu gengur vel og það framkallar ótrúlega stemmingu eins og maður sé á staðnum. Þetta er stórt smáatriði sem GHWT missti af. Mér finnst það vera virkilega ósmekklegt að setja inn þetta Star Power hljóð og kreista tónlistina yfir í nokkurs konar „loudness" þegar maður ræsir Star Power í GHWT og einnig má geta þess að ljóta „klank" hljóðið er enn til staðar í GHWT sem heyrist ef þú missir af nótu sem skemmir virkilega fyrir ef þú ert að njóta lagsins. Í GHWT er ekki hægt að skrúfa fyrir það hljóð ólíkt því sem var hægt í GH3.
Það er líklegt að allir finni eitthvað við sitt hæfi hvað tónlistarval varðar í hvorum tveggja leikjanna. Eins og staðan er í dag þá rúllar RB2 yfir GHWT hvað varðar lagaúrval og eiga þeir eftir að fara yfir 500 laga múrinn í lok þess árs. Það eru 16 af sömu lögunum í báðum leikjunum og það var einmitt með þeim samanburði sem maður sá gallana fyrst koma í ljós í GHWT umfram RB2. Hægt er að sjá lagalistann fyrir Rock Band 2 hér og lagalistann fyrir GHWT hér. Þess má geta að tónlistina úr RB1 má færa yfir á harða diskinn með einfaldri aðgerð, kostar 400 MSP en lögin úr eldri GH leikjum færast ekki yfir sem er mikill miður.
Spilunin
Bara það eina að maður getur spilað eftir takti í Rock Band 2 en getur það ekki í GHWT segir nánast allt sem segja þarf. Í GHWT er búið að bæta við nótum í lögin sem eiga ekki að vera þar og ekki er hægt að halda takti í lögunum eins og þú myndi r gera það eftir eyranu í Rock Band 2. Einnig er mun stærra hit-ratio í GHWT sem gerir það að verkum að ef þú ert góður í Rock Band og ferð yfir í GHWT mun leikurinn láta þig halda að þú sért betri en þú í raun og veru ert. Ég rak mig á þetta eftir að ég kláraði GHWT og fór yfir í Rock Band að allt í einu var ég ekki að ná eins góðum árangri í lögunum og ég gerði áður en ég prófaði GHWT. Í Rock Band 2 er mun víðáttumeira band mode en í GHWT en í honum er hægt að klára Band Tour á rúmum fimm klukkstundum eða svo. Rock Band 2 Band Tour er mun erfiðari enda kemur þú við í fleiri borgum og inn á milli býðst þér að spila Battle of the Bands sem eru áskoranir á Netinu þar sem þú keppir á móti öðrum hljómsveitum. Þessar áskoranir eru ávalt ferskar, t.d. ef þú ert snemma að morgni að þá gætir þú lent á „The Early Bird challenge" sem lýkur á hádegi eða „The Late campers challenge" á næturna sem lýkur að morgni. Eftir að tímarammi áskoruninar er liðinn að þá er engin leið að taka þátt í áskoruninni aftur en nafn hljómsveitar þinnar verður alltaf á ,,high-score" listanum á www.rockband.com í þeirri áskorun sem þú tókst þátt í. Þetta gerir spilunina skemmtilegri og bætir upp fyrir að í Rock Band 2 þá er ekki hægt að spila 4 vs 4 á Netinu í rauntíma en það er hægt í GHWT. Hins vegar sé það reynt í GHWT þá þarf maður stundum að bíða óheyrilega lengi eftir að band leiti mann uppi og eftir 20 mín bið að þá gafst ég upp. Ég er mikið meira hrifinn af Rock Band 2 leiðinni með band vs. Band að gera þetta á þennan hátt með Battle of the Bands þar sem þú ert að keppa við high-score þess bands fyrir ofan þig og getur tekið þátt í áskoruninni svo lengi sem hún er virk.
Annars er spilunin in-game mjög svipuð nema að í GHWT er ekki hægt að bjarga hljómsveitarmeðlimum aftur inn í giggið eins og hægt er í RB2. Ef þú dettur út í GHWT þá ertu búinn að skemma fyrir öllum hinum og verður álitinn bjáni, en í RB2 þá er hægt að bjarga þér inn aftur tvisvar. Í RB2 er einnig hægt að ræsa Overdrive og með því hjálpar þú öllum að komast upp á grænu stikunni en slíkt er ekki upp á teningnum í GHWT heldur þarf hver og einn að ræsa star power til að hjálpa sjálfum sér eða tvöfalda skorið sitt. Svo má geta þess að þú þarft ekki að hafa allt bandið heima hjá þér heldur er hægt að stofna online hljómsveit og komast þannig í gegnum leikina hvoru tveggja.
Söngurinn:
Söngurinn er í höndum konu minnar að dæma og aðspurð út í sönginn að þá kveðst hún hafa hætt að vilja spila GHWT vegna þess að söngurinn gaf enga endurgjöf ólíkt Rock Band 2 þar sem reglulega kom fram í lögunum hvernig gekk að fylgja tónhæð en slíkt er ekki í GHWT. Henni finnst einnig að þegar hún er að syngja í GHWT þá skipti söngurinn ekki eins miklu máli og hann er í RB2 vegna þess að þar finnst henni hún vera meira hluti af heildinni og mikilvægur aðili. Það er jafnframt óljóst í GHWT hvenær maður getur ræst star power en mjög augljóst í RB2.
Gítarinn:
Neversoft hafa bætt inn mjög einkennandi nótusamsetningum sem eru í engu samræmi við hvernig hægt er að spila á gítar í raunveruleikanum. Dæmi um þetta er að kemur löng græn nóta sem þú þarft að halda inni og á meðan þú heldur henni inni þá ertu að strumma á rauðu, gulu, bláu og appelsínugulu. Í GHWT er einnig hægt að ,,finger-tappa" nótur í sólóum efst á gítarhausnum en slíkt er aðeins hægt í Rock Band 2 með því að nota sólótakkana. Slíkar nótur í GHWT eru aðgreinar með línu á milli en þær er hægt að slá á með því að nota sliderinn sem er á GHWT gítarinum.
Bassinn:
Bassinn er mjög skemmtilegur í GHWT en þar þarf maður oft að nota strummerinn án þess að nota fret takkana og það bætir við auka nótu og gerir bassan sem oftast er mjög einhæfur skemmtilegri fyrir vikið. Í Rock Band 2 er hann eins og við má búast, nóturnar á sínum stað.
Trommurnar:
Trommurnar eru mjög svipaðar í báðum leikjunum en þér mun líða mun meira eins og þú sért að spila á alvöru trommur þegar þú spilar Rock Band 2. Í byrjun flestra laga getur maður trommað að vild og hljóðin í RB2 eru virkilega authentic miðað við dósahljóðið sem heyrist í GHWT. Í RB2 þegar þú hefur safnað upp í Overdrive að þá kemur frjáls kafli inn í laginu þar sem þú getur trommað að vild og ræst star power út frá því. Hins vegar í GHWT þá þarftu einfaldlega að slá á gula og bláa sem gerir það að verkum að ef þú ert að feila út í lagi að þá muntu klárlega missa multiplierinn þinn og e.t.v. taktinn einnig.
Neversoft hafa einnig bætt inn mjög einkennandi nótusamsetningum sem eru í engu samræmi við hvernig hægt er að spila á gítar í raunveruleikanum. Dæmi um þetta er að kemur löng græn nóta sem þú þarft að halda inni og á meðan þú heldur henni inni þá ertu að strumma á rauðu, gulu, bláu og appelsínugulu. Bassinn er hins vegar mjög skemmtilegur í GHWT en þar þarf maður oft að slá.
Hljóðfærin
Báðir leikirnir skarta sínum fínustu plastleikföngum og sum eru eigulegri en aðrir. Þegar þetta er skrifað er GHWT gítarinn ekki kominn í hús. Ég spilað heldur lítið á GH trommurnar því eftir að ég sá þær og skoðaði þær með berum augum þótti mér þær ekki álitslegur kostur til þess að eyða tíma í. Þær einfaldlega henta mér ekki og eru kjánalegar miðað við það sett sem ég á heima: THE ION DRUM ROCKER! Mér er alveg sama þótt Chad úr RHCP hafi samþykkt GH trommurnar, honum var líklega greitt fyrir það sérstaklega í ljósi þess að trommurnar virkuðu ekki þegar leikurinn kom út til að byrja með. Var ég ekki að minnast eitthvað á það fyrr í þessari grein að Activision væru að gera þetta einungis peningana vegna? Makes sense þegar horft er á gæði trommanna sem fylgdu leiknum við útgáfu ekki satt?
Míkrafónn
Ég notaði Logitech USB Microphone og hann virkar alveg eins og báðum leikjum. Maður þarf að nota Xbox 360 Controller ef maður ætlar að syngja því það eru engin stjórntæki á míkrafóninum.
Gítar
Um leið og þú ert búinn að setja saman Rock Band 2 gítarinn þá finnurðu strax af áferðinni að dæma að þetta eru gæði! Strummerinn er hljóðlátur og með mikla nákvæmni, svo mikla að þú getur spilað á hann með gítarnögl. Takkarnir eru einnig þynnri þannig að þeir eru fljótari að grípa nóturnar þegar þú ert í hraðari sólóum. Áferðin á plastinu er mun vandaðri heldur en fyrirrennarinn og það finnur þú með því að strjúka hálsinum aftan frá. Gítarinn er einnig þráðlaus og skiptir það miklu máli. Effect takkarnir eru á sínum stað, whammy bar er lengri og í mínu tilviki ekki eins stífur og áður. Það er búið að setja plast hring í kringum start takkann þannig að það eru engar líkur á því að fólk rekist í start takkann í miðju lagi. Ég kann mikið betur að meta Rock Band gítarana í stað þeirra sem Activision framleiðir þar sem þetta klick-klick hljóð í strummerinum truflar mig og skemmir ánægju þeirra sem eru að spila með manni eða horfa á.
Bassi
Mad Katz bassinn sem framleiddur er fyrir Rock Band virkar ekki með GHWT. Hann er 85% af fullri stærð Fender bassans og nákvæm eftirlíking. Engir takkar eru á honum fyrir utan fret takkana heldur eru húnar sem þú snýrð til að nota start / back og eins er með effectana en þeir eru aðrir heldur en þeir sem er að finna á gítarinum. Fret takkarnir eru nær hvorum öðrum og ýta þarf tiltölulega létt á þá þannig að þeir tengjast við þær nótur sem koma á skjáinn. Strummerinn er tvískiptur og fyrir ofan hann er þægilegur hvíldarstaður fyrir þumalputtann en maður notar vísifingur og löngutöng á strummerinn rétt eins og maður spilar í raunveruleikanum á alvöru bassa.
Trommur
Trommurnar sem ég fékk mér voru að sjálfsögðu ION DRUM ROCKER en það er alvöru rafmagnstrommusett frá Alesis. Settið gefur gott endurkast þegar maður slær á nóturnar og því verður maður ekki eins þreyttur eins og þegar maður spilar á stock settið sem er úr plasti. ION settinu fylgja einnig tveir cymbals en þá er hægt að nota fyrir gula, bláa og græna litinn. Þetta trommusett er einungis fyrir fólk sem spilar Rock Band / GHWT af alvöru. Settið kostar um 90 þús ISK innflutt miðað við gengið í dag frá USA í gegnum Shop USA. Hægt er að raða trommunum á hvaða vegu sem er og þegar réttri stöðu er náð er hrein unun að spila á það.
Endingartími
Það er alveg klárt mál að GHWT verður að hysja upp um sig buxurnar til þess að eiga eitthvað í RB2 sem eru löngu búnir að sigla framúr þeim hvað lagaval varðar. Band tour í GHWT tekur um 6 klst ef ekki er feilað á neinu lagi og þessu er fljótlega lokið. Eftir það er hægt að dúlla sér í solo sem tekur álíka langann tíma því allt snýst þetta um að spila öll lögin í leiknum og verður þreytt til lengdar. Fjölspilunin í GHWT á eflaust eftir að auka endingartíma leiksins en hægt er að velja fjölda mismunandi tegunda fjölspilunar en mér finnst að slíkur fjöldi eigi eftir að falla um sjálft sig þar sem það verða aldrei nógu og margir að spila eina ákveðna tegund fjölspilunar því það er um svo mikið að velja, 1vs1, 2vs2, 3vs3, 4vs4, battle, solo osfrv. Band World Tour í RB2 er hins vegar mun lengri en í GHWT og það mun taka fólk marga mánuði að klára það ef fólk mun á endanum gera það yfir höfuð. Þarna er farið til fjölda borga í heiminum og í hverri borg er ein krá, einn salur og ein höll til að spila á. Þetta gerir viðkomu í hverri borg mun lengri ólíkt GHWT þar sem aðeins eru spiluð 3-4 lög í hverri borg og ekki er einu sinni óskað eftir því að hljómsveitin spili sitt eigið gigg í borgunum ólíkt því sem hægt er í Rock Band 2. Í RB2 eru einnig band challenges. Þetta eru áskoranir fyrir hljómsveitir til að spila heilu diskana eftir ákveðnar hljómsveitir saman eða jafnvel spila öll lögin í leiknum af ákveðinni tegund eins og „metal". Spilunin þarf ekki að gerast á einu bretti en skemmtilegt er það sé hægt að velja að spila eina tegund tónlistar með bandinu sínu.
Heildarniðurstaða
GHWT mistekst allsstaðar þar sem Rock Band 2 skarar framúr að öllu leyti. Neversoft skaut langt fyrir ofan sett mark og mistókst harkalega. Ekki nóg með að nótusamsetning trommana í GHWT eru gallaðar og klunnalegar að þá getur fólk sem á ION Drum Rocker settið virkilega upplifað þá sönnu tilfinningu að spila á alvöru trommur en sú reynsla fæst því miður eingöngu sé það gert í Rock Band 2. Lagavalið í GHWT er einnig ákaflega slappt þótt hægt sé að finna gullmola þarna inn á milli eins og Hotel California með Eagles sem mér þótti eina skemmtilega lagið í fjöldanum. Neversoft ætlaði sér það mikið um of að þeir settu meira að segja inn tónlistarstúdíó í leikinn og fólk má ekki einu sinni búa til stef úr Mario Bros því því er eytt um leið og það birtist á GH versluninni. Það er næstum ómögulegt að pikka inn nótur með þessum hætti og ég geri ekki ráð fyrir því að fólk eigi eftir að eyða miklum tíma í það gimmick. Eins spenntur og ég var fyrir GHWT og reyndi að elska hann þá stóð hann alls ekki undir væntingum. Activision er búið að sýna það og sanna að þeir geti ekki mjólkað þessi licence endalaust og Neversoft fékk ekki nægilegan tíma til þess að klára verkið. Rock Band 2 mun halda áfram að vera besta valið fyrir fjóra leikmenn að koma saman og skemmta sér eins og enginn sé morgundagurinn, hlusta á gæða tónlist og upplifa nýja tónlista sem þeir hefðu að öðrum kosti aldrei hlustað á hefði það ekki verið fyrir Rock Band. Rock Band 2 spilunin er endingarmikil og margt hægt að gera sem á eftir að gera þetta að einum af eigulegustu leikjum sem komið hafa út í langann tíma, hljóðfærin eru virkilega vel hönnuð í alla staði og ef fólk hefur efni á ION settinu og tímir að kaupa ný og góð lög vikulega þrátt fyrir gengið þá er þetta besta skemmtun fyrir alla.
Ég á eftir að spila Rock Band 2 mun meira heldur en GH:WT og á meðan þau lög sem ég fíla sem eru í GH:WT eru ekki að birtast í RB2 sem DLC þá mun ég spila GH:WT þegar mig langar til að heyra þau lög en ég mun klárlega aldrei fara með heilt band að spila GH:WT því upplifunin er ekki nálægt því sú sama og í RB2. Ef þú ert solo artist sem spilar bara á gítar þá er GHWT eflaust ágætis skemmtun fyrir þig og sama er uppi á tengingnum með Rock Band 2. Hins vegar ef þú ert að leita eftir að spila með fleirum en sjálfum þér að þá er Rock Band 2 málið fyrir þig.
Guitar Hero World Tour:
Framsetning: 5 - Margt sem lofað var og beðið var eftir með eftirvæntingu mistekst á harkalegan hátt. Menu kerfið er klunnalegt og grípur leikmenn ekki. Leikurinn virkar barnalegur og hljóðfærin eru talin vera einstaklega misheppnuð.
Grafík: 7 - Mikið að gerast á skjánum og mikið um glitcha á textures auk þess að ekki er mikið lagt upp úr því að horft sé á hvað hljómsveitin í leiknum er að gera á sviðinu. Lip sync er hins vegar mjög gott. Illa framsett tónleikaumhverfi með ýkjum og óraunverulegum uppákomum sem eru hallærislegar.
Hljóð: 6 - Góð samsetning á fjölbreyttu lagavali og allir ættu að finna sér eitthvað við hæfi. Vantar möguleika á að taka inn lögin úr GH3 og hljóðið úr tónlistarstúdíóinu er arfaslakt.
Spilun: 6 - Of mikið af möguleikum til mismunandi spilunar sem lítið er notað, það er eins og það sé aldrei neinn einn ákveðinn spilunarmöguleiki sem mesta vinnan var lögð í. Þetta er allt út um allt. Ómögulegt að halda takti vegna þess að „hit-ratio" nótnanna er svo stórt (heppilegt fyrir byrjendur). Stutt band tour og leikurinn verður fljótt þreyttur.
Ending: 7 - Það er erfitt að spá fyrir með endinguna þar sem Neversoft hafa ekki staðið sig sem skyldi með útgáfu DLC fyrir þennan leik. Ég er skeptískur á framtíðina þar sem Activision hefur þegar látið út úr sér að þeir ætli sér að gefa út sex GH titla árið 2009. Fjölspilunin getur verið skemmtileg og fáir eiga eftir að nenna að búa til sína eigin tónlist þar sem hljóðgæðin eru hræðileg.
Lokaeinkunn: 6 Hvorki góður né slæmur)
Rock Band 2
Framsetning: 10 - Harmonix lagði sig virkilega fram við að búa til alvöru tónleika á sviðinu og það er magnað þegar áhorfendur syngja með þegar vel gengur að spila lögin. Grípandi andrúmsloft og fullkomin hljóðfæri.
Grafík: 8 - Engir glitchar í grafík. Tónleikaumhverfið eðlilegt og víðáttumikið. Mikið lagt upp úr flottu menu umhverfi og einkennandi grafík.
Hljóð: 10 - Stærsta tónlistarsafn leikjatölvusögunnar séu tekin með öll lögin úr RB1, DLC og svo 109 lög með Rock Band 2. Gæðin í hljóðinu er ótrúlega tær og hægt er að aðgreina með auðveldum hætti allar rásir.
Spilun: 10 - Hægt er að halda takti eftir því sem maður verður betri í leiknum. Band World Tour er mun lengri en fyrirrennarinn og dýpri til muna með innkomu Battle of the Bands. Öllum leikmönnum finnst þeir vera hluti af bandinu og liðsheildin er það sem skiptir máli til að komast í gegnum langa setlista.
Ending: 10 - Með nýjum lögum í hverri viku og nýjum Battle of the Bands áskorunum á hverjum degi gerir endingu leiksins mikla. Einnig bætast við Player / Band Challenges reglulega þegar keypt er DLC og það er öruggt mál að leikurinn á eftir að halda þér við efnið í marga mánuði. Með möguleikanum að klára The Endless Setlist á einu bretti áttu eftir að liggja önnum kafinn við að mastera leikinn fram á mitt næsta ár þegar þú loksins ákveður að nú sé rétti tíminn til þess að taka af skarið.
Lokaeinkunn: 9.5 (Frábær)
Sigurvegarinn er:
ROCK BAND 2
Hér fyrir neðan eru öll lögin sem fylgja báðum leikjunum.
Lög sem fylgja GHWT
•	311 - "Beautiful Disaster"
•	30 Seconds To Mars - "The Kill"
•	Airbourne - "Too Much Too Young"
•	The Allman Brothers Band - "Ramblin' Man"
•	Anouk - "Good God"
•	The Answer - "Never Too Late"
•	At The Drive-In - "One Armed Scissor"
•	Beastie Boys - "No Sleep Till Brooklyn"
•	Beatsteaks - "Hail to the Freaks"
•	Billy Idol - "Rebel Yell"
•	Black Label Society - "Stillborn"
•	Black Rebel Motorcycle Club - "Weapon of Choice"
•	blink-182 - "Dammit"
•	Blondie - "One Way or Another"
•	Bob Seger & The Silver Bullet Band - "Hollywood Nights"
•	Bon Jovi - "Livin' On A Prayer"
•	Bullet For My Valentine - "Scream Aim Fire"
•	Coldplay - "Shiver"
•	Creedence Clearwater Revival - "Up Around The Bend"
•	The Cult - "Love Removal Machine"
•	Dinosaur Jr. - "Feel The Pain"
•	The Doors - "Love Me Two Times"
•	Dream Theater - "Pull Me Under"
•	The Eagles - "Hotel California"
•	The Enemy - "Aggro"
•	Filter - "Hey Man, Nice Shot"
•	Fleetwood Mac - "Go Your Own Way"
•	Foo Fighters - "Everlong"
•	The Guess Who - "American Woman"
•	Hush Puppies - "You're Gonna Say Yeah!"
•	Interpol - "Obstacle 1"
•	Jane's Addiction - "Mountain Song"
•	Jimi Hendrix - "Purple Haze (Live)"
•	Jimi Hendrix - "The Wind Cries Mary"
•	Jimmy Eat World - "The Middle"
•	Joe Satriani - "Satch Boogie"
•	Kent - "Vinternoll2"
•	Korn - "Freak On A Leash"
•	Lacuna Coil - "Our Truth"
•	Lenny Kravitz - "Are You Gonna Go My Way"
•	Linkin Park - "What I've Done"
•	The Living End - "Prisoner of Society"
•	Los Lobos - "La Bamba"
•	Lost Prophets - "Rooftops (A Liberation Broadcast)"
•	Lynyrd Skynyrd - "Sweet Home Alabama (Live)"
•	Mars Volta - "L'Via L'Viaquez"
•	MC5's Wayne Kramer - "Kick Out The Jams"
•	Metallica - "Trapped Under Ice"
•	Michael Jackson - "Beat It"
•	Modest Mouse - "Float On"
•	Motörhead - "Overkill"
•	Muse - "Assassin"
•	Negramaro - "Nuvole e Lenzuola"
•	Nirvana - "About a Girl (Unplugged)"
•	No Doubt - "Spiderwebs"
•	NOFX - "Soul Doubt"
•	Oasis - "Some Might Say"
•	Ozzy Osbourne - "Crazy Train"
•	Ozzy Osbourne - "Mr. Crowley"
•	Paramore - "Misery Business"
•	Pat Benatar - "Heartbreaker"
•	R.E.M. - "The One I Love"
•	Radio Futura - "Escuela De Calor"
•	Rise Against - "Re-Education Through Labor"
•	Sex Pistols - "Pretty Vacant"
•	Silversun Pickups - "Lazy Eye"
•	Smashing Pumpkins - "Today"
•	Steely Dan - "Do It Again"
•	Steve Miller Band - "The Joker"
•	Sting - "Demolition Man (Live)"
•	The Stone Roses - "Love Spreads"
•	Stuck In The Sound - "Toy Boy"
•	Sublime - "Santeria"
•	Survivor - "Eye of the Tiger"
•	System of a Down - "B.Y.O.B."
•	Ted Nugent - "Stranglehold"
•	Ted Nugent's Original Guitar Duel Recording
•	Tokio Hotel - "Monsoon"
•	Tool - "Parabola"
•	Tool - "Schism"
•	Tool - "Vicarious"
•	Trust - "Antisocial"
•	Van Halen - "Hot For Teacher"
•	Willie Nelson - "On The Road Again"
•	Wings - "Band on the Run"
•	Zakk Wylde's Original Guitar Duel Recording
Lög sem fylgja Rock Band 2:
1960s
•	Norman Greenbaum "Spirit in the Sky"
•	The Who "Pinball Wizard"
1970s
•	AC/DC "Let There Be Rock"
•	Allman Brothers "Ramblin' Man"
•	Bad Company "Shooting Star"
•	Blondie "One Way or Another"
•	Bob Dylan "Tangled Up in Blue"
•	Cheap Trick "Hello There"
•	Elvis Costello "Pump It Up"
•	Fleetwood Mac "Go Your Own Way"
•	Jethro Tull "Aqualung"
•	Journey "Anyway You Want It"
•	Kansas "Carry On Wayward Son"
•	Rush "The Trees"
•	Squeeze "Cool for Cats"
•	Steely Dan "Bodhitsattya"
•	Steve Miller Band "Rock'n Me"
•	Talking Heads "Psycho Killer"
•	The Guess Who "American Woman"
1980s
•	Billy Idol "White Wedding Pt. I"
•	Bon Jovi "Livin' on a Prayer"
•	Devo "Uncontrollable Urge"
•	Duran Duran "Hungry Like the Wolf"
•	Jane's Addiction "Mountain Song"
•	Joan Jett "Bad Reputation"
•	Megadeth "Peace Sells"
•	Metallica "Battery"
•	Motorhead "Ace of Spades"
•	Ratt "Round & Round"
•	Sonic Youth "Teenage Riot"
•	Survivor "Eye of the Tiger"
•	The Go-Go's "We Got the Beat"
•	The Grateful Dead "Alabama Getaway"
•	The Replacements "Alex Chilton"
1990s
•	Alanis Morissette "You Oughta Know"
•	Alice in Chains "Man in the Box"
•	Beastie Boys "So Whatcha Want"
•	Bikini Kill "Rebel Girl"
•	Dinosaur Jr. "Feel the Pain"
•	Foo Fighters "Everlong"
•	Judas Priest "Painkiller"
•	L7 "Pretend We're Dead"
•	Lit "My Own Worst Enemy"
•	Lush "De-Luxe"
•	Mighty Mighty Bosstones "Where'd You Go"
•	Nirvana "Drain You"
•	Pearl Jam "Alive"
•	Presidents of the USA "Lump"
•	Rage Against the Machine "Testify"
•	Red Hot Chili Peppers "Give it Away"
•	Smashing Pumpkins "Today"
•	Social Distortion "I Was Wrong"
•	Soundgarden "Spoonman"
•	Testament "Souls of Black"
•	The Muffs "Kids in America"
•	The Offspring "Come Out & Play (Keep 'em Separated)"
2000s
•	AFI "Girl's Gone Grey"
•	Avenged Sevenfold "Almost Easy"
•	Beck "E-Pro"
•	Disturbed "Down with the Sickness"
•	Dream Theater "Panic Attack"
•	Guns N' Roses "Shackler's Revenge"
•	Interpol "PDA"
•	Jimmy Eat World "The Middle"
•	Lacuna Coil "Our Truth"
•	Linkin Park "One Step Closer"
•	Mastodon "Colony of Birchmen"
•	Modest Mouse "Float On"
•	Panic at the Disco "Nine in the Afternoon"
•	Paramore "That's What You Get"
•	Rise Against "Give it All"
•	Silversun Pickups "Lazy Eye"
•	System of a Down "Chop Suey"
•	Tenacious D "Master Exploder"
•	The Donnas "New Kid in School"
Bonus Tracks
•	Abnormality "Visions"
•	Anarchy Club "Get Clean"
•	Bang Camaro "Night Lies"
•	Breaking Wheel "Shoulder to the Plow"
•	The Libyans "Neighborhood"
•	The Main Drag "A Jagged Gorgeous Winter"
•	Speck "Conventional Lover"
•	The Sterns "Supreme Girl"
•	That Handsome Devil "Rob the Prez-O-Dent"
Hér eru ekki nefnd bónuslögin sem komu út sem DLC í nóvember 2008.
© Örvar Geir Friðriksson (xDOT COMx)
Street Fighter IV
Það þekkja allir leikjanördar Street Fighter hvort sem þeir hafa spilað hann eða ekki.
Street Fighter 2 er fyrirmynd allra nútíma slagsmálaleikja, frá 1991-95 var enginn Arcade leikur vinsælli og fáir tölvuleikir vinsælli almennt.
Persónurnar í honum eru meðal þeirra þekktustu í leikjaheiminum, Það kannast flestir við Ryu, Ken, Chun-Li, M. Bison og alla hina.
Upp úr 1995 fóru 3D slagsmálaleikir að yfirtaka markaðinn, almenningur fór að spila Virtua Fighter, Tekken og Soul Blade frekar en aðra leiki.
Þessir 3D eru aðgengilegri en 2D leikir, hver sem er getur prófað þá og fundist þeir kunna eitthvað, meðan 2D leikirnir urðu flóknari og erfiðari með tímanum. Street Fighter 3 sem kom 1996 er það flókinn og djúpur að það tekur mörg ár að "mastera" hann, auk þess sem næstum ekkert af gamla góða liðinu sem fólk þekkti var í honum.
Nú eru liðin næstum 10 ár síðan SF3: Third Strike kom út og Capcom eru að vonast til að ná hinum almenna leikjaunnanda aftur með Street Fighter IV. Öllu furðulega liðinu úr SF3 hefur verið hent í ruslið, í staðinn eru klassísku persónurnar sem allir þekkja mættar aftur og nokkrum nýjum bætt við. Einnig er búið að einfalda leikinn án þess að skemma hann, það borgar sig enn að æfa í marga mánuði en maður er ekki alveg gagnslaus þótt maður kunni ekki leikinn út í gegn.
Það eru 25 persónur í leiknum, 16 til að byrja með og restina þarf að vinna sér inn.
Street Fighter 4 er "2.5D" leikur, semsagt tvívíddar leikur með þrívíddar grafík. Eins og allir slagsmálaleikir gengur SF4 aðallega útá tímasetningu og minni, að læra hin mismunandi brögð og vita hvenar á að nota þau.
Stýringarnar eru að mestu þær sömu og í öllum Street Fighter leikjum, 3 takkar til að slá og 3 til að sparka mis fast og hratt.
Allar persónurnar hafa forða af brögðum sem er best að læra, þau eru flest framkvæmd með því að ýta á réttar áttir á D-padinu og svo einhvern árásartakka.
Neðst á skjánum eru bláir mælar sem fyllast meðan á bardaga stendur, þegar þeir fyllast allir hefur maður aðgang að "Super Combo" sem gerir mikinn skaða. Einnig er hægt að nýta einn fullan mæli til gera sterkari útgáfur af venjulegum brögðum.
Við hliðina á bláu mælunum er svo einn rauður sem heitir "Revenge gauge" hann hækkar því meira sem maður er laminn, þegar mælirinn er hálffullur er hægt að gera "Ultra Combo", Revenge mælirinn verður til þess að sá sem er undir í byrjun hefur fyrr aðgang að sterkari brögðum og ulta comboin eiga það til að jafna leiki eða jafnvel snúa tapi í vinning.
Ein nýjung í SF4 er svokallað "Focus Attack", ef ýtt er á báða mið takkana safnar maður styrk og lemur svo þungu höggi sem er óverjanlegt, meðan maður er að safna verst maður sjálfkrafa einu höggi, ekki fleirum. Focus attack er mjög djúpt og aðalega ætlað vönum SF spilurum. Það er alveg hægt að verða mjög góður án þess að nota það.
Svo ofan á allt þetta er allskonar dót fyrir hörðustu SF spilara til að leika með: Super Cancels, Ultra cancels, lausara combo system og fleira.
Þetta er gullfallegur leikur, bjartur og litríkur. Allar persónur eru mjög vel "animated", andlitin á öllum eru virkilega vel gerð, þau bregðast við því sem er að gerast í leiknum og sýna mikinn persónuleika. Persónurnar gretta sig þegar þær lemja, brosa breitt þegar þær vinna og virðast vera að skíta á sig þegar ultra combo er að fara að lenda á þeim.
Borðin eru sömuleiðis flott með mikið að gerast í bakrunninum og bardaginn sjálfur hefur áhrif á þau. Ef Zangief þrumar einhverjum í jörðina þá detta hlutir og brotna í bakrunninum. Þetta gefur SF4 "þyngd" sem vantar í marga svona leiki.
Það eina sem er ekki fallegt í SF4 eru anime videóin sem koma þegar maður byrjar og klárar arcade mode, þau eru svakalega einföld eitthvað og talið í þeim oft alveg hræðilegt.
Hljóð leiksins er allt fínt, tónlistin góð með blöndu af nýjum lögum og gömlum remixuðum. Einnig er hægt að breyta tungumáli leiksins milli ensku og japönsku á hverja persónu fyrir sig sem er frábært.
Street Fighter gengur allur út á að lemja fólk og það sést á því hvað það eru fá game modes. Leikurinn er alveg laus við allt "fluff", engir mini keilu leikir eða púsluleikir eða neitt. Ég bendi þeim sem vilja þannig á Mortal Kombat eða Tekken. Leikurinn inniheldur samt Challenge Mode sem hýsir ýmsar þrautir til að gera t.d. vinna marga í röð án þess að deyja eða innan við ákveðinn tíma. Það er alveg gaman af því öðru hvoru, allavega einusinni til þess að fá leynihluti. Svo er Training mode sem kennir brögð og combo. Inní Gallery eru svo listaverk og videó sem maður vinnur sér inn.
Svo loks er Xbox Live multiplayer. Multiplayer er númer 1 2 og 3 í slagsmálaleikjum því að spila aleinn er eins og að spila online skotleik á móti bottum. Það jafnast fátt við að slást við einhvern sem er álíka góður og maður sjálfur, að þurfa að yfirbuga hann með vel úthugsuðu plani frekar en með "button mashi" eða heppni. SF4 býður upp á bestu netspilun í slagsmálaleik sem ég hef séð. Ég fann almennt svakalega lítið fyrir laggi sem er mjög mikilvægt fyrir svona leik. Það er ekki mikið um að velja svosem, bara ranked eða unranked leiki en snilldin er sú að hægt er að spila Arcade mode með opið fyrir áskorunum frá fólki út í heimi, þeim sem datt þetta í hug á skilið launahækkun.
Þegar maður græðir stig í ranked mode safnar maður iconum og titlum sem sjást á prófílnum, því lengra sem þú nærð í ranked mode því flottari icons og titla færðu aðgang að, svona til að skera sig úr eða blekkja hugsanlega andstæðinga.
Capcom eru líka búnir að lofa fleiri fítusum fyrir online play t.d. keppnir í ókeypis viðbót fyrir leikinn sem ætti að koma út á næstunni.
Eitt mjög lélegt sem ég þarf að minnast á er að Capcom eru að rukka fyrir auka búninga á alla kallana. Það í sjálfu sér væri ekkert svo slæmt, en maður sér búningana á fólki sem maður keppir við online sem þýðir að búningarnir eru inná disknum. Það er bara ljótt að láta mann borga fyrir hluti sem eru á disknum sem maður er búinn að kaupa.
Street Fighter 4 er alveg frábær leikur, grafíkin er góð og spilunin frábær, sérstaklega í Multiplayer. Ég mæli eindregið með honum fyrir alla sem spiluðu SF2 í gamla daga og líka þá sem spiluðu kannski aldrei en finnst gaman að lemja fólk í tölvuleikjum.
Cyrus Ali Khasabi © Lord Cyrus Ali
Left 4 Dead
Í byrjun leiksins sér maður video sem kveikir aðeins í manni og gefur manni smjörþefinn af sögu leiksins. Í stuttu máli eru 4 persónur að ráfa um bæinn og lenda svo í miklum átökum við uppvakninga þar til þau loksins komast á rólegri stað og þar tekur spilunin við. Og er þitt aðal markmið að komast útúr bænum og fyrst og fremst, lifa af.
Útá grafík leiksins er lítið hægt að setja. Source vélin stenst tímans tönn með prýði og heilt á litið lítur leikurinn virkilega vel út. Hann er kannski ekki á sama stalli og grafík skrímsli eins og Gears of War 2 en alveg vel yfir standördum nútímans. Það sem mætti kannski helst nefna er lýsingin sem mér finnst alveg stórkostleg á köflum og birtan frá vasaljósinu býr til magnaða stemningu sem lætur þig sitja framarlega í sófanum. Svo á leikurinn ekki vandræðum með að henda í þig óteljandi óvinum á sama tíma án þess að byrja að stama við það..
Hljóðið er einnig frekar skothelt. Tónlistin gefur manni þennan bíómyndafíling sem leikurinn er að reyna að skapa, talsetningin klikkar ekki og hljóðin í uppvakningunum geta gefið manni gæsahúð. Hjartslátturinn eykst þegar maður heyrir vælið í nornum og maður kíkir varlega fyrir hornið þegar maður heyrir í feitum boomer vera að ógeðast í næsta herbergi.
En sú deild sem að þessi blessaði leikur skarar eflaust framúr í er spilunin. Þar er co-op spilun í aðalhlutverki og eru fáir leikir sem búa yfir eins skemmtilegu samspili í dag. Maður rífst um það hver á að fara fyrst útum dyrnar því maður er svo smeykur við það hvað býður manns og öskrar á félaga sína ef maður sér lúmskan og hættulegan hunter skríðandi við sjóndeildarhringinn. Stemningin sem myndast getur orðið kostuleg og er þessi leikur hreinræktuð skemmtun í góðra vina hópi á Xbox Live. En eins skemmtilegur og hann er í co-op er hann örlítið dapur í einspilun. Maður hefur möguleikan á að spila í gegnum alla 4 söguþræðina annað hvort einn með tölvustýrðum félögum, eða með allt að 3 lifandi samherjum. Og er seinni kosturinn töluvert skemmtilegri. gervigreind tölvunnar er að vísu einstaklega góð en aðstæðurnar sem maður lendir í eru sjaldan mjög óvæntar með tölvuna með þér því þú ert ávallt leiðtoginn og tekur fyrsta skrefið inná nýtt svæði. Á meðan á hinn bóginn gæti kannski einn vinur þinn fengið þá flugu í hausinn að þykjast vera Rambo og hlaupa einhverja aðra leið heldur en þú og lendir svo þar af leiðandi líklega í miklum vandræðum sem krefst þess að restin af hópnum þarf að finna hann og bjarga honum.
Eini galli leiksins verður að teljast hvað hann er stuttur. 4 söguþræðir og maður er kannski í klukkutíma í gegnum hvern af þeim á normal erfiðleikastigi. En það sem hann skortir í lengd bætir hann upp með síbreytilegum aðstæðum innan sögunnar. Leikurinn aðlagar sig að þinni spilun og sér um að halda þér og félögum þínum alltaf á tánum með öðrum vopnum á mismunandi stöðum í hvert skipti sem þú ferð í gegnum hann. Einnig birtast óvinir á síbreytilegum stöðum og aldrei í nákvæmlega sömu röð. Þetta lengir vissulega líftíma leiksins en margir hverjir gætu þó fengið leið á honum óþarflega snemma sökum þess hve stuttur hann er.
Einn annar stórskemmtilegur hluti leiksins er fjölspilunin og felur hún í sér 4vs4 þar sem annað liðið tekur við stjórn fjórmenningana bakvið byssurnar og hitt liðið fer í gervi uppvakninga sem hafa það verkefni að stoppa hina fjóru fræknu áður en þeir komast úr bænum. Þetta getur verið magnað fjör og krefst þess að vera taktískur á báða bóga og 'outsmarta' hitt liðið.
Í heildina litið er þessi leikur stútfullur af skemmtun og mæli ég með honum fyrir alla sem fíla co-op leiki, zombie leiki/bíómyndir, og bara flesta sem eiga góða vini sem gaman er að spila með online. Ending leiksins er mögulega eini galli hans en þann galla má vissulega bæta með góðu aukaefni í gegnum okkar heittelskaða marketplace.
Ég ætla að gefa leiknum 8,5 í einkunn og það sem stendur uppúr er hversu skemmtileg og fjölbreytt spilunin er, manni finnst maður aldrei vera að gera nákvæmlega sama hlutinn þökk sé ófyrirsjáanlegum óvinum og mismunandi leikfélögum í gegnum netið.
© Kristján Aage Hilmarsson