xbox360.is - Tutorials: Xbox 360 almennt
XBOX360 250GB S - Hvað er nýtt
NÝTT Í XBOX 360 S OG SAMANBURÐUR VIÐ XBOX 360 "old"
Nýja XBOX 360 S (framvegis nefnd sem 360S) vélin er endurhönnun vélbúnaði XBOX360 (framvegis nefnd sem (360ld). Vélin kemur með 250GB hörðum diski og kostar það sama og ELITE útgáfan af 360ld í Bandaríkjunum ($299). Allt inniviði vélarinnar hefur verið endurhannað og móðurborðið heitir Valhalla eins og í 360ld þar sem þekkjum Jasper/Falcon/Xenon. Valhalla gefur kost á 30% meira rými fyrir vélbúnað vélarinnar og nú er CPU/GPU/eDRAM (örgjörvi og minni) eini og sami kubburinn. Þetta gerir það að verkum að vélin er bæði smærri og hljóðlátari heldur en 360ld útgáfur. 250GB harði diskurinn er nú staðsettur undir vélinni í stað ofan á (miðast við að vélin sé látin standa eins og á ofangreindri mynd). Á vélinni eru fimm USB 2.0 tengi og sérstakt tengi fyrir Kinect skynjarann sem gerir það að verkum að Kinect tengist beint í vélina og þarf ekki utanáliggjandi aflgjafa sem 360ld þurfa hins vegar. Ólíkt eldri vélum inniheldur 360S innbyggt þráðlaust 2.4 GHz 802.11 b/g/n netkort og TOSLINK S/PDIF ljósleiðaratengi fyrir hljóðútgang. Í eldri vélum voru síðast nefndu tveir möguleikar seldir aukalega sem viðbætur við vélina. Memory Unit tengin sem eru framan á 360ld vélum hafa verið fjarlægð og í staðinn eru tvö USB 2.0 tengi og því virka ekki gömlu minniskubbarnir frá Microsoft lengur við vélina. Í apríl síðastliðinn kom uppfærsla sem gerir XBOX360 vélum kleift að nota minnislykla allt að 16GB að stærð til að vista efni fyrir vélina eins og t.d. prófíla sem gott er að geta ferðast með á milli til vina sinna. Tveir snertiskynjarar eru framan á vélinni, annar til að opna geisladrifið og hinn til að slökkva og kveikja á vélinni. Þeir gefa frá sér vingjarnlegt hljóð þegar fingur eru settir fyrir framan þá. Hægt er að taka 250GB harða diskinn úr vélinni en hann er ekki samhæfður 360ld vélbúnaði. Aðrar sýnilegar breytingar eru að núna er ein stór vifta í stað tveggja smærri á 360ld. Áferðin á vélinni er glansandi í staðinn fyrir mött eins og á 360ld vélum. Stýripinninn sem fylgir með vélinni er svartur á öllum hliðum og guide-takkinn í miðjunni er með chrome-glansáferð. Ofan á stýripinnanum stendur XBOX360 ólíkt Microsoft á eldri gerðum. Síðast en ekki síst er vélin 90% hljóðlátari en nokkur önnur gerð af 360ld sem ég hef átt. 360S vélin sem ég á er númer 17 í röðinni.
ÁTT ÞÚ AÐ UPPFÆRA Í XBOX360 250GB S?
Í fyrsta lagi ef þú ert nú þegar eigandi að XBOX360 sem er tveggja ára eða yngri er ekki hundrað í hættunni á því að þú sért að missa af einhverju. Jasper vélar eru hljóðlátar miðað við Xenon týpuna sem var í gangi 2005-2007 og er alls ekki líkleg til að fá RROD á næstu mánuðum / árum. Ef þú átt nú þegar Falcon vél sem framleidd er árið 2007 að þá gæti verið kominn tími á að uppfæra því þær eiga það til að fá RROD eftir þrjú eða fjögur ár. Einnig skalt þú athuga að ef það er ekkert að vélinni þinni að þá er í raun engin ástæða til að fá sér nýjustu vélina nema þig vanti þá eiginleika sem 360S býður upp á sem eru þráðlaust net og stór harður diskur. Hins vegar ef hávaðinn í vélinni þinni er að gera þér lífið óbærilegt og eða vélin hefur fengið RROD að þá mæli ég hiklaust með því að þú kaupir þér 360S og það strax!
ÁTT ÞÚ AÐ KAUPA ÞÉR NOTAÐA XBOX360 eða XBOX360 250GB S?
Nýjir kaupendur sem aldrei hafa átt XBOX360 og eru að hugsa um að fjárfesta þurfa að horfa á tvennt. Annars vegar ef verðið er gott á notaðri vél sem framleidd er 2008-2010 og er með Jasper móðurborði á verðbilinu 30-35 þúsund fyrir staka vél að þá eru það góð kaup. Sérstaklega ef horft er á leiki sem seldir eru með notaðri vél á þessu verðbili. Hins vegar ef þú vilt fá það allra nýjasta að þá segir það sig sjálft að þú átt að panta þér XBOX 360 250GB S útgáfuna strax í dag því það er hægt að fá vélina í gegnum vefverslun xbox360.is hér á síðunni fyrir 45-49 þúsund með öllum gjöldum heim upp að dyrum. Verðbilið fer eftir sendingarmáta og gengi gjaldmiðla hverju sinni.
SMELLTU HÉR TIL AÐ VERSLA XBOX 360 250GB S ÚTGÁFUNA
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA HVAÐA SÖLUTILBOÐ ERU Í GANGI Á NOTUÐUM VÉLUM
Vefverslun xbox360.is
Leiðbeiningar
Settu vörur í körfuna með því að velja "add to basket
Þegar þú hefur fundið allt sem þig vantar smelltu þá á "Proceed to check-out" og þá verður þú færður yfir á amazon.co.uk þar sem þú fyllir inn upplýsingar um greiðslu, sendingarmáta, heimilisfang osfrv.
Ef þú finnur ekki þá vöru sem þig vantar hafðu þá samband við stjórnendur xbox360.is og þeir bæta henni við undir "séróskir".
Ef þú lendir í vandræðum og vantar aðstoð hafðu þá samband við einn af stjórnendum xbox360.is: Vectro, DOT COM eða Six Air.
Amazon.co.uk leyfir hverjum notanda að versla mest fimm stykki af hverju vörulið. Það er sniðug hugmynd að sameinast margir saman um hóppöntun eins og DOT COM hefur verið að gera undanfarið. Þannig deilist sendingarkostnaðurinn, tollmeðferðargjald / tollskýrslugjald á hópinn.
Þegar þú verslar í gegnum vefverslun xbox360.is hjálpar þú Íslenska Xbox Samfélaginu að standa undir sér auk þess að möguleikar skapast til að bjóða veglegri vinninga í getraunum hér á síðunni í formi leikja og þess háttar.
Notaðu reiknivélina okkar til að reikna út verðið með öllum gjöldum. Reiknivélin tekur mið af tollgengi hverju sinni sem breytist daglega.
Svona er endanlegt verð reiknað út: Verð leiks + sendingarkostnaður * 1,1 (tollur) * 1,255 (VSK) + 550 kr. (tollmeðferðargjald).
Ef reikningsupphæð frá Amazon.co.uk fer yfir kr. 30.000.- þá bætist við tollskýrslugerð kr. 3.500.-
Ráðgjöf um kaup á notaðri Xbox 360 vél
Hvar er hagstæðast að versla sér Xbox 360 í dag?
Amazon.co.uk eru nánast undantekningalaust ódýrari heldur en verslanir hérlendis. Netverslunin sendir vélarnar heim til þín upp að dyrum á ódýran máta og þú færð árs ábyrgð á vélinni. Verðmunur hérlendis og á Amazon hefur stundum hlaupið á tugum þúsunda.
Nánari upplýsingar á http://amazon.co.uk og leitað að Xbox 360.
Er slæmt að kaupa notaða Xbox 360 sem ekki er lengur í ábyrgð?
Það sem skiptir mestu máli er hvaða framleiðsludagsetning er á vélinni. Hægt er að sjá það aftan á vélinni hjá aflgjafa inntakinu. Vélar sem eru eldri en eins árs eru líklega ekki með nýjasta kubbasettinu og því með skertan líftíma. Þú gætir mögulega verið að versla vél sem gæti dáið á morgun. Algengast er að athuga hvernig aflgjafi fylgir vélinni og hversu mörg volt hann er.
203W Fyrstu útgáfurnar Xenon / Zephyr
175W Næstu útgáfur Falcon / ( Opus - viðgerðarvélar frá Microsoft)
Athuga ber þó að þegar fyrstu Falcon vélarnar komu þá voru þær með 203W aflgjafa, og einhverjar Jasper vélar komu með 175W aflgjafa.
Aflgjafarnir virka fram í tímann, en ekki aftur. Þ.e.a.s. Jasper virkar með öllum eldri aflgjöfum, en fyrstu útgáfur af xbox virka bara með fyrstu (203W) aflgjöfunum.
Aftan á vélunum má sjá amper tölur.
16.5A Fyrstu útgáfurnar.
14.2A þriðja útgáfa.
12.1A Jasper
Sem sagt, 150W og 12.1A = pottþétt Jasper.
Þú þarft að spyrja seljandann afhverju vélin er ekki í ábyrgð og þrátt fyrir það fá að sjá nótu fyrir því hvenær vélin var keypt. Smelltu af framhliðinni til að sjá hvort innsiglið er rofið. Ef innsiglið er rofið að þá er líklegt að átt hafi verið við vélbúnað vélarnar og að hún hafi einhvern tímann fengið RROD (Red Ring of Death (bilanaheiti Xbox 360)).
Myndir af mismunandi innsiglum:
eða
Jasper er nýjasta kubbasettið og þær vélar hafa verið að gefa mjög góðan árangur. Þær eru hljóðlátar og hitna ekkert. Þú vilt kaupa Jasper!
Seljandi vélarinnar segir mér að vélin komist ekki lengur á Xbox Live. Er nauðsynlegt að vélin geti tengst Live?
Ef vélin kemst ekki á Xbox Live þá eru 99% líkur á því að vélinn sé modduð til þess að spila sjóræningaeintök. Vélin er þá bönnuð af Xbox Live sem gerir það verkum að þú getur ekki stofnað þér notendanafn til að tengjast Xbox Live, ekki notað vélina sem media center og getur ekki installað leikjum á harða disk vélarinnar til að spara snúning á geisladrifinu. Passaðu þig að láta ekki gabba þig á því að borga tugi þúsunda fyrir vél sem er bönnuð af Xbox Live þrátt fyrir að fjöldinn allur af leikjum fylgi með henni. Xbox Live er stór þáttur af Xbox 360 reynslunni og þú ert að missa af miklu ef þú færð ekki að nota þann þátt vélarinnar.
Ég er að sjá gott tilboð á vél til sölu í Kauphöllinni. Hvað á ég að bjóða í hana?
MKV og H.264 spilun á Xbox 360
Hér koma fram þær takmarkanir:
Tilvitnun
Xbox 360 supports the following for H.264:
•         File Extensions: .mp4, .m4v, mp4v, .mov
•         Containers: MPEG-4, QuickTime
•         Video Profiles: Baseline, main, and high (up to Level 4.1) profiles.
•         Video Bitrate: 10 Mbps with resolutions of 1920 x 1080 at 30fps. See question number 11 for more information.
•         Audio Profiles: 2 channel AAC low complexity (LC)
•         Audio Max Bitrate: No restrictions. See question number 11 for more information.
Hér má sjá að Xboxið styður ekki Mkv sem er open source container fyrir video skrár og er nánast undantekningalaust notaður utan um H.264 skrár sem má finna á netinu. Einnig má sjá að hljóðið má einungis vera 2 rásir.
Til að gera Xbox 360 kleift að spila Mkv skrár þurfum við því að skipta um container og breyta hljóðinu. Til þess hef ég notast við GOTSent sem er frír hugbúnaður sem sér um allt fyrir okkur.
Hugbúnaður sem við þurfum:
GOTSent
AC3Filter
Haali Media Splitter
Nero AAC Encoders
Við byrjum á því að sækja GOTsent og extracta því í einhverja möppu.
Síðan sækjum við Nero AAC Encoders og setjum innhaldið í sömu möppu. Eftir það setjum við upp AC3Filter og Haali Media Splitter. Nú getum við farið að breyta skránum.
Opnum GOTsent veljum hvað skrá við ætlum að breyta og hvert breytta skráin á að fara og þetta sé fyrir Xbox 360.
Síðan smellum við á AC3Filter options og pössum að hjóðið sé stillt á 2/0 – sterio.
Xbox Live - Setur spilun á annan stall
Það sem mér finnst hvað best við Xbox Live og það sem skilur það frá annarri netspilun tölvuleikja er hversu auðvelt það er að finna og spila með vinum manns. Maður hefur einfaldlega einn sameiginlegan vinalista fyrir alla leiki á Xbox Live sem rúmað getur allt að 100 manns. Þegar maður kveikir á tölvunni (og er tengdur Live) þá getur maður farið inná vinalistann sinn og séð hvað vinir manns eru að gera. Ef einhver er að spila t.d. Gears of War og það er laust pláss í leiknum þá þarftu bara að smella á “join session in progress” og þá ertu von bráðar kominn inn í leikinn. Svo er ekkert mál að bjóða öðrum vinum inn í leikinn, þó að þeir séu að spila allt annan leik eða horfa á bíómynd þá geturðu sent þeim boð í leikinn.
Dæmi um vinalista
Einhverjir eru kannski að hugsa “en ég þekki engan sem á Xbox 360, hvað hef ég að gera svona vinalista?” Þar kemur inn þetta góða íslenska samfélag á xbox360.is. Ég þekkti t.d. ekki neinn sem átti Xbox 360 þegar ég keypti mína tölvu en ég var fljótur að kynnast íslenskum spilurum í gegnum síðuna og líka við spilun. Svo ef þú spilar með einhverjum sem þér líkar við þá geturðu bara bætt honum á vinalistann þinn.
Annar stór kostur við Live er að það nýtist ekki bara í multiplayer spilun, núna eru komnir margir leikir sem bjóða uppá co-op spilun í gegnum aðalsögu leiksins. Þá geta þú og vinur þinn (eða þess vegna einhver ókunnugur) spilað saman í gegnum leikinn þó að þið séuð víðsfjarri hvor öðrum.
Xbox Live hentar alls konar fólki, það ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þegar maður skráir sig getur maður valið um mismunandi svæði til að vera á eftir því hvernig fólki maður vill spila með. Þannig geta þeir sem keppast að því að vera þeir bestu í ákveðnum leikjum spilað gegn hverjum öðrum og séð hvar þeir standa þar sem flestir leikir bjóða uppá ranked spilun þar sem haldið er utan um úrslitin og stöðuna. Þeir sem vilja taka því rólega geta spilað player leiki þar sem ekki er haldið utan um úrslitin og ekki eins mikil alvara á ferð. Svo geta þeir sem hafa mestan áhuga á að spjalla við annað fólk spilað rólega leiki eins og t.d. UNO sem býður uppá stuðning við Live Vision Cam svo fólk geti séð hvert annað á meðan það spilar.
Það er einmitt hægt að spjalla við vini sína í gegnum Live Vision Cam sem kemur sér vel ef þú átt vini eða ættingja í útlöndum sem þú vilt geta séð og spjallað við. Þá er einnig hægt að spjalla með headsettinu jafnvel þó að sá sem þú ert að spjalla við sé í allt öðrum leik. Svo er hægt að senda bæði hljóð- og textaskilaboð auk þess sem að stuðningur við Windows Live Messenger þannig að þú getur spjallað við MSN vini þína þó að þeir eigi ekki einu sinni Xbox 360.
Xbox 360 - Eintóm hamingja
Viðar heiti ég og er 22 ára gamall. Eitt sem er sennilega ólíkt með mér og flestum öðrum Xbox spilurum sem stunda þennan vef, er að ég hef aldrei tekið eftir Xbox, ekki þeirri gömlu og hafði ekki hugmynd um þá nýju þegar hún kom út. Ég fékk mér Xbox 360 í desember 2006 og er óhætt að segja að hún hafi kveikt áhuga minn á leikjaspilun almennilega aftur. Ástæðan fyrir því að ég er að láta þetta út úr mér er vegna þess að það eru örugglega ansi margir þarna úti svipaðir ,,spilarar" og ég, eða það sem myndi eflaust kallast ,,Recreational" eins og Xbox skilgreinir það. Sem sagt, spilarar sem hafa ekki allann dugnaðinn og þolinmæðina sem þarf í suma leiki.
Þessu breytti Xbox 360 hjá mér, núna hef ég mun meiri löngun og vilja til þess að fullklára leiki og hjálpar ,,Achievements"-kerfið mjög við það. Samt sem áður er þolinmæðin mín ekki alveg nógu góð til þess að fara í 1000 stig í hverjum leik, sem fyrir þá óupplýstu, er heildar ,,Gamerscore" fyrir þá leiki sem fást hjá endursöluaðilum.
Annar góður hlutur sem þessi vél hefur gert fyrir mig er að hún hefur mikið félagslegt gildi á mínu heimili. Með hjálp ,,Arcade" leikjasafnsins, Guitar Hero, Gears of War, The Darkness, BioShock, Marvel: Ultimate Alliance, Viva Pinata, NBA 2K7, FlatOut:UC, Burnout: Revenge, Forza Motorsport 2 og fleiri frábærra leikja sem fá toppeinkunn í mínum bókum, hafa vinir, ættingjar og kærastan skemmt sér konunglega. Netspilun hefur verið alger snilld fyrir mitt leiti, og er þá nóg að tala um marga góða leiki í NBA2K7, Forza Motorsport 2, samspilun á Netinu í Gears of War og gömlum góðum ,,Arcade" leikjum.
Xbox 360 olli því einnig að ég lét verða af því að losa mig við PC hlunkinn minn sem ég var algerlega hættur að nenna að spila tölvuleiki í. Nú dugar mér einn lítill lappi fyrir Netið og skriffinsku. Næst á dagskránni hjá mér er að koma mér fyrir á MSN í Xbox 360 með hjálp Messenger Kit lyklaborðsins. En það er nýkomið í verslanir þegar þetta er skrifað.
Hvað varðar háskerpu að þá var það hlutur sem ég hafði algerlega enga reynslu af. Fyrstu daga eftir Xbox 360 kaupin var vélin tengd við 21" túbusjónvarp sem mér þótti í góðu lagi um stundarsakir. Það var þó ekki fyrr en ég prófaði að fara með hana til bróður míns sem á 42" plasma sjónvarp. Þvílík fegurð...það var ekki aftur snúið og ég fór rakleiðis á Netið. Þar hellti ég mér í alla þá gagnrýni af sjónvörpum sem ég komst yfir. Á endanum keypti ég mér Toshiba REGZA 32" '68 línuna. Tækið hefur reynst mér frábærlega og ég er nokkuð viss um að þessi kaup hafi verið pottþétt (7-9-13). Rétt í þessu var að bætast við heimabíó, hlakka til að setjast niður með pinnann og setja BioShock í.
Ég get alveg haldið áfram að skrifa en þetta er nægur skammtur af gleði í bili. Ég biðst afsökunar á þessum kannski "of" fögru orðum. Fólk gæti hreinlega haldið að ég hafi aldrei þurft að fá nýja Xbox 360 vél. Það hef ég þurft að fá þar sem hin eldri las diskana illa. Ég sé fram á að vélin eigi eftir að halda áfram að skemmta mér og öðrum í nokkuð góðan tíma í viðbót. Framúrskarandi leikjaúrval sem væntanlegt er á næstunni er óhugnalegt.
Íslenskir tölvuleikjanotendur
Byrja að spila tölvuleiki sem börn
Samkvæmt þessari könnun byrjuðu langflestir að spila tölvuleiki ungir. 82% þátttakenda segjast hafa byrjað að spila 12 ára eða yngri og spila allir þeir sem tóku þátt í könnuninni tölvuleiki enn þann dag í dag.
Aldur
Aldurshópurinn er á bilinu 12 til 44 ára en meðalaldur spilara er 21 ár. Samkvæmt ESA er meðalaldur spilara 35 ára í Bandaríkjunum. Íslenskar og erlendar niðurstöður sýna að spilarar hafa vaxið með tölvuleikjaiðnaðinum, þ.e.a.s. byrjað að spila tölvuleiki ungir og haldið því áfram til dagsins í dag.
Kynjahlutfall
Kynjahlutfall spilara hér á landi er einstakt, þar sem hlutfall kvenkyns spilara er mjög lágt, en 96,5% spilara eru karlkyns og einungis 3,5% kvenkyns. Bandarískar rannsóknir sýna að um 40% spilara þar í landi eru kvenkyns og hefur hlutfall þeirra aldrei verið hærra. Víðtækari könnun hefur verið gerð um tölvuleikjaspilun framhaldsskólanema á Íslandi þar sem 330 manns tóku þátt og kemur þar fram að um 28,5% tölvuleikjaspilara eru kvenkyns. Hugsast getur að framhaldsskólastúlkur spili frekar tölvuleiki en stúlkur á öðrum aldri eða spili tölvuleiki frekar á heimilistölvum en leikjatölvum, en slíkar rannsóknir hafa ekki enn verið gerðar. Erlendar kannanir sýna að hlutfall kvenkyns tölvuleikjaspilara hefur ávallt verið lágt. Þetta verður til þess að fyrirtæki framleiða leiki með karlkyns spilara í huga og halda því mögulega kvenkyninu utan tölvuleikjamarkaðins.
Fyrsta leikjatölvan mín var...
Lang algengast er að fyrsta leikjatölvan hjá íslenskum spilara sé af eldri gerðum frá Nintendo (NES, SNES og Game Boy). Eina leikjatölvan sem komst nálægt vinsældum Nintendo á Íslandi var Sega Mega Drive, en engin leikjatölva komst með tærnar þar sem Nintendo var með hælana.
Vinsælustu leikjategundirnar
Vinsælustu leikjategundirnar hér á landi eru fyrstu persónu skotleikir og hasar- og ævintýraleikir. 70% af þeim 175 sem spurðir voru sóttust í fyrstu persónu skotleiki og 78% í hasar- og ævintýraleiki.
Legend of Zelda: Ocarina of Time : Besti leikur allra tíma?
Þegar íslenskir tölvuleikjaspilarar voru spurðir hver besti leikur allra tíma var að þeirra mati þá völdu áberandi margir (alls 19 manns - eða tæp 11%) ævintýraleikinn Legend of Zelda: Ocarina of Time, sem hefur fengið gríðarlega góða dóma. Aðrir leikir sem eru vinsælir hjá íslenskum spilurum er GTA- leikjaserían, Metal Gear Solid-leikjaserían og Call of Duty 4. Allir þessir leikir eru fyrstu persónu skotleikir eða hasar- og ævintýraleikir og er því greinilegt að þessar tvær tölvuleikjategundir eru lang vinsælastar meðal íslenskra spilara.
Kostnaður
Íslenskir tölvuleikjaspilarar virðast ekki eyða háum upphæðum í leikjatölvur og tölvuleiki. Algengast er að eyðslan sé á bilinu 0 - 10.000 kr. á mánuði (eða undir 120.000 kr. á ári), eða hjá um 91% þátttakenda í könnuninni. Hinir (9%) eyða á bilinu 10.000 – 20.000 kr. á mánuði (eða 120.000 – 240.000 kr. á ári). Eyðsla tölvuleikjaspilara gefur samt sem áður ekki til kynna hversu há heildarupphæðin er þar sem einhverjir spilarar fá leikjatölvur og/eða tölvuleiki í gjöf og margir foreldrar kaupa tölvuleiki fyrir börnin sín.
Tími
Algengast er hjá spilurum að eyða 10-20 klst. í tölvuleikjaspilun á viku. Þá eyða um 34% tölvuleikjaspilara á Íslandi u.þ.b. 6% - 12% af árinu í tölvuleikjaspilun. Ef gefið er að um 30% leikja sem spilaðir eru þjálfi hug spilarans á einn eða annan hátt (t.d. í snerpu, hugsun, landafræði eða sagnfræði), bætir þessi hópur spilara við sig sem samsvarar um 19 – 39 kennsludögum á ári (ef miðað er við 8 klst. kennsludag). Miðað við hvað tölvuleikjaspilarar eyða miklum tíma í tölvuleiki má sjá að þeir eru ekki svo dýr afþreying. Ef tölvuleikur er keyptur á 9.000 kr og endist í 25 klst., þá er kostnaðurinn um 360 kr./klst. (sem er mun ódýrara en t.d. bíóferð).
Vinsælustu leikjatölvurnar
Þegar að PS kom á markaðinn kusu langflestir PS (40,5%) og N64 (46,5%) fram yfir Sega Saturn (3%). Vinsældir PS jukust enn frekar með tilkomu PS2 þar sem flestir kusu þá leikjatölvu fram yfir aðrar sem voru fáanlegar á þeim tíma (60,5%). Í dag er slagurinn vera á milli PS3 og Xbox 360 hjá spilurum landsins og er ljóst að harður slagur er framundan milli Microsoft og Sony á Íslandi þar sem 36,5% spilara ætla að kaupa næstu tegund leikjatölvu frá Microsoft og 33,5% frá Sony. Einungis 12% ætla að fá sér næstu kynslóðar leikjatölvu frá Nintendo en 15% aðspurða hafa ekki gert upp hug sinn.
Hjúskapar- og vinnustaða tölvuleikjaspilara
Engan meirihluta er hægt að sjá hvað varðar hjúskapastöðu tölvuleikjaspilara. Svipað margir eru einhleypir og þeir sem eru í einhverskonar sambandi (giftir, trúlofaðir o.s.frv.). Talsvert fleiri spilarar eru námsmenn (47,5%) en þeir sem eru á vinnumarkaði (22,5%) eða sem eru í námi og á vinnumarkaði (27%).100 Tölvuleikjaspilarar koma úr ýmsum starfsstéttum og má m.a. finna verslunarstjóra, rafvirkja, múrara, forstöðumenn, pípara, öryggisverði, smiði,
kennara, forritara, sýningarstjóra og verkefnastjóra í hópi þeirra.
SAFT
Microsoft punktar (MSP)
Á Xbox Live Marketplace er margt í boði. Þar er hægt að kynna sér leiki sem hafa verið gefnir út með því að niðurhala demó-um og myndbrotum. Enn fremur er hægt að ná í demó úr væntanlegum leikjum og horfa á svokallaða "teaser-a" til að hita sig upp fyrir leiki sem margir hverjir bíða með mikilli eftirvæntingu. Liðsmenn Microsoft sáu fljótt hversu mikil búbót XBLM gæti orðið fyrir notendur Xbox 360. Kostirnir og möguleikarnir gætu orðið óþrjótandi ef rétt væri haldið á spilunum.
Hvernig virka punktarnir?
Ýmindaðu þér risastóran sjálfsala. Hann er breiður og hár, með gífurlegt vöruúrval. Það eina sem þú þarft að gera er að setja klinkið í hann (hlaða punktunum inn). Gjaldmiðillinn í hinum sífellt stækkandi sjálfsala eru punktarnir! Þú hleður punktunum inn á sjálfsalann og getur þá valið úr því gífurlega úrvali sem er á XBLM. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að punktarnir hverfi þegar þú slekkur á tölvunni, þú átt þá áfram inn á þínum reikning og þeir renna aldrei út.
Hvernig kemst ég yfir Microsoft Points?
Mjög einfalt er að komast yfir Microsoft Points, maður þarf ekki einu sinni kreditkort. Flestar verslanir sem selja Xbox360 leiki hafa einnig fyrirframgreidd MP-kort í hillum sínum. Ef þú átt ekki kreditkort er þetta mjög einföld leið fyrir þig til að redda þér punktunum. Þú kaupir einfaldlega kortin í versluninni, ferð heim og fylgir auðlesnum leiðbeiningum og stimplar inn sérstakan kóða sem er á kortinu. Þá hlaðast punktarnir inn á reikninginn þinn. Við mælum alls ekki með því að fólk noti íslensk kreditkort á Xbox Live. Slíkt hefur orðið til þess að gamertag fólks verða ónothæf þar sem ekki er hægt að skrá sig á Íslandi á Xbox Live.
Við mælum með eftirfarandi síðum sem meðlimir okkar hérlendis eru búnir að prófa oft og mörgum sinnum. Oftar en ekki er ódýrara að versla á þessum síðum heldur en í verslunum hérlendis þar sem álagning er mikil.
http://www.maximuscards.com
Hér notar þú google checkout og skráir þig inn með gmail/google aðganginum þínum. Þeir selja bæði fyrir USA og UK prófíla. Passa að velja rétt eftir því sem á við um þig. Þeir senda kóðann nánast samstundis.
http://www.xboxliveuk76.com -> sama og http://www.cardscodes.com sem er nýja síðan þeirra.
Selja punkta og áskriftir fyrir UK og Evrópska aðganga.
Selja punkta fyrir USA aðganga.
http://www.gamepointsnow.com
Oftast fyrir UK og Evrópska aðganga.
Hvað kosta punktarnir?
Skoðið ofangreindar síður.
Hvernig nýtast punktarnir mér?
Punktarnir gefa notendum Xbox 360, hvort sem þeir eru Gold eða Silver meðlimir kost á að hala niður fjölbreyttum viðbótum við uppáhalds leikina sína, hvort sem þær eru litlar eða koma í stórum pökkum. Segjum sem svo að þú sért búinn að klára skotleikinn þinn (td. Call of Duty eða Halo) eða vilt fá meiri fjölbreytni í hann þá geturu halað niður svokölluðum map packs fyrir hann, eða valið úr þeim borðum sem þú vilt spila og sleppt þeim sem þú hefur ekki áhuga á. Með punktunum getur þú einnig náð í ýmsa hluti fyrir leiki sem ekki eru spilaðir á netinu. Þú getur til að mynda náð í ýmsa hluti (td. vopn) fyrir stríðs- og hlutverkaleiki.
Ef þú ert t.d. búinn með Rock Band og heldur að þú sért orðinn jafnoki Jimi Hendrix geturu náð í hina ýmsu pakka á XBLM og spreytt þig þannig á enn fleiri lögum. Það eru yfir 1000 lög til á XBLM fyrir Rock Band.
Arcade leikjakaup
Einn af stærstu kostunum við punktana er sá að þeir gefa þér kost á að endurnýja kynnin við gömlu klassísku leikina. Einnig leynast ýmsir frábærir nýjir Arcade leikir sem aldrei hafa sést áður. Hægt er að fá prufuútgáfu af leikjunum sem gefa þér kost á að prófa hluta af leiknum. Gegn vægu gjaldi er hægt að festa kaup á fullri útgáfu af leiknum sem býður þér upp á alla möguleika í spilun leiksins.
Meðal vinsælustu titlanna eru: DOOM, Street Figther II, Pac-Man Championship Edition, Mortal Kombat 3, Catan, UNO, Prince of Percia, Bomberman Live að ógleymdum Track and Field! og Worms.
Búið er að tilkynna gífurlegan fjölda leikja sem eru á leiðinni þannig að úrvalið mun margfaldast með tímanum.
Gerðu Xbox-ið að þínu eigin
Punktarnir geta einnig nýst þér í því að gera tölvuna aðeins persónulegri. Þú getur náð í gamercard myndir fyrir prófílinn þinn og valið úr fjölbreyttu úrvali þema. Einnig getur þú keypt þér aukahluti fyrir Avatarinn þinn.
Nánari upplýsingar og umræður um það sem er að gerast á Xbox Live Marketplace er að finna undir viðeigandi spjallborði hér á síðunni.
Möguleikarnir á Xbox Live Marketplace eru endalausir!
Viðtal við Maxim Dane (Protocol Droid)
Maxim Dane er eins og flestir á www.xbox.is vita einn allra harðasti Xbox 360 leikjaspilari Íslands. Hann fór þann 7. september síðastliðinn yfir 100000 leikjastiga (gamerscore) múrinn og er langt fyrir ofan aðra íslenska leikmenn samkvæmt Íslenska Leikmannalistanum sem gefinn er út af ÍXS (Íslenska Xbox Samfélaginu) og hægt er að skoða hér á síðunni okkar.
Staðan hjá Maxim Dane er nú þessi:
Verðlaun sem Maxim Dane hefur fengið á 360voice.com
Elite Score Whore: Maxim Danes gamerscore is in the top 1% of all 360voice gamers.
50 Day Streak: Maxim Dane is unstoppable! Going for 100 days.
Completed 50 Retail Titles: 100% gamerscore on fifty full games! Impossible!
Completed 20 Arcade Titles: 100% gamerscore on twenty arcade games! Go Maxim Dane!
Style Award - Gaming Jedi Master: When it comes to gaming Maxim Dane is an Achievement Jedi Master
Loving Xbox: Maxim Dane plays so much, his Xbox LOVES him!
Staðreyndir um spilun Maxim Dane:
- Maxim Dane er í 62 sæti yfir þá í heiminum sem hafa klárað flestu leikina.
- Maxim Dane hefur spilað alls 196 leiki á Xbox 360.
- Maxim Dane er í top 20 yfir hæstu leikmenn í heiminum sem ekki hafa svindlað með því að nota gamesaves.
Þetta bloggar vélin hans Maxim Dane daginn sem hann fer yfir 100.000:
Maxim Dane's Xbox - 9/7/2007
When you get right down to it, when Maxim Dane decides to play - it's a good day all around. Our score is 100,433 and always improving! That is a gain of 460 points over last time! We are now truly elite. The 100k club means we are operating at a completely different level! That is a one followed by five zeros! 100,000!! Count 'em! He opened up BioShock picking up an amazing 11 achievements, Gears of War, and then Maxim Dane had to stop for a bathroom break or something... Humans really are bags of mostly water.
Undirritaður fór á fund Maxim Dane þriðjudaginn 11. september þar sem við ræddum leikjaspilun, áhugamálið og leikjastigin.
Það var um kvöldmatarleitið sem undirritaður mætti heim til Maxim Dane. Maxim svaraði hurðinni í skyndi með höfuðtólið fast á höfðinu og með Xbox 360 stýripinnann í annari hendi. Hann rauk inn í stofu þar sem glumdi í Gears of War en hann var í miðju ,,ranked match" á Xbox Live spilandi við erlenda leikmenn. Ég settist rólega niður svo ég myndi ekki trufla kappann. Hann var greinilega að eltast við Pistolero Acheivementið sem hann fær þegar hann hefur náð 100 drápum með skammbyssunni í ,,ranked match" á Xbox Live. Þarna hljóp hann um borðið og sló niður mann og annan með skammbyssunni, miðaði snyrtilega á hausinn á óvininum og skaut hann. Í lok leiksins þá blossaði upp skilaboðin: ,,Achievement Unlocked. 20G Pistolero" og Maxim Dane fagnaði ákaft enda stór áfangi. Maxim Dane er nú hæstur Íslendinga í Gears of War með 1120 leikjastig.
Maxim Dane afsakaði sig pent úr GEARS og gaf sér loks tíma til þess að svara spurningum mínum.
Aðspurður um hvaðan Maxim Dane leikmannanafnið (gamertag á Xbox Live) er komið svarar Maxim Dane að um þær mundir þegar hann skráði sig á Xbox Live þá hafði hann verið að spila EVE Online og notað sama leikmannanafn þar. Hann kveðst hafa fengið Xbox 360 vélina þremur vikum fyrir útgáfudag en kveikti hins vegar ekki á henni fyrr en í byrjun janúar. Hann hafði ekki verið á Xbox Live þrátt fyrir að hafa átt XBOX síðan hún kom út árið 2001. Í febrúar fékk hann sér hins vegar Xbox Live Start pakkann og hefur ekki séð eftir kaupunum síðan.
Maxim Dane hefur lengi verið mikill áhugamaður um tölvur og tölvuleiki. Hann hefur lengst af verið mest í PC leikjum en síðan Xbox 360 kom út þá hefur vélin átt hug hans alfarið. Fyrsta reynsla hans af tölvuleikjum var 1976 þegar hann fékk lánaða Atari VCS 2600 frá vini sínum eða ,,Woodgrain" eins og hún er oft kölluð vegna viðaráferðar hennar. Það var þó ekki fyrst fyrr en árið 1983 sem hann eignaðist sína fyrstu tölvu sem var af gerðinni Atari 400. Hann langaði til dæmis ekki í Sinclair Spectrum. Fannst hún vera léleg. Hann hefur allar götur síðan fylgt þróun tölvuleikja og er það hans mesta áhugamál.
Maxim Dane starfar einnig við áhugamálið sitt. Hann hefur því vegna vinnu sinnar haft greiðan aðgang að öllum þeim Xbox 360 leikjum sem gefnir hafa verið út í Evrópu.
Þótt ótrúlegt megi virðast þá spilar Maxim Dane ekki alla Xbox 360 leiki sem hafa komið út í Evrópu. Þeir leikir sem gripu hann fyrst á Xbox 360 voru Call of Duty 2 (1000 stig 100%) og Condemned (970 stig 100%). Það var þá fyrst sem hann kom auga á ,,Achievement" kerfið. Í stað þess að klára leiki einu sinni komst Maxim Dane að því að ,,Achievement" kerfið gerði það að verkum að hann gat fengið meira út úr leikjunum og verið verðlaunaður fyrir. Síðan þá hefur hann tileinkað sér að klára þá leiki fullkomlega sem honum finnst skemmtilegt að spila. ,,Það fer í taugarnar á mér ef ég næ ekki að klára leikinn 100%" segir Maxim.
Hann spilar hins vegar ekki alla leiki. Til að mynda hefur hann ekki spilað vinsæla leiki á borð við Viva Pinata, Forza Motorsport 2, Overload og DiRT. Hann gæti þó hæglega hækkað gamerscore sitt ef hann vildi. Í dag á Maxim Dane 30 leiki upp í hillu sem hann hefur aldrei spilað. Maxim segir ,,Achievement" kerfið gefa auka innsýn inn í leikina". Hann segir nýtinguna vera meiri og spilunin verður dýpri t.d. með því að finna allar hljóðdagbækurnar í Bioshock.
Maxim segir að erfiðast hafi verið að ná síðasta ,,Achievement"-inu í Lego Star Wars 2 en það tók hann 12-14 klukkustundir. Hann minntist einnig á að hafa spilað Bullet Witch leikinn í ,,Hell"-styrkleika (erfiðast) í sex klukkustundir aðeins til þess að ná síðasta ,,Achievement"-inu sem gaf honum aðeins eitt stig. ,,Ég kæri mig í raun ekki um stigin eins og margir halda heldur fyrir það sem þau standa. Ég meira að segja tók núll stigin í LOTR, BFME II upp á húmorinn að gera enda hafði ég gaman af leiknum" segir Maxim.
Maxim segir að það geti tekið vikur ef ekki mánuði að spila suma leiki 100%. Það tók hann margar vikur að ná ,,Online Achievements" í Shadowrun sem hann hefur klárað 100%. ,,Núna er ég að vinna mig í gegnum Gears of War".
Maxim Dane er mjög skipulagður þegar kemur að spilun sinni. ,,Það eru ávalt þrír leikir á stofuborðinu hverju sinni og þeir víkja ekki upp í hillu fyrr en þeim er lokið. Reglan verður líklegast brotin þegar Halo 3 kemur út" segir Maxim með bros á vör. Val leikjanna þriggja sem spilaðir eru hverju sinni segir Maxim vera einn ,,online" leik, einn ,,single player" og einn slappann leik sem gæti verið gaman að skoða. Þegar leik er lokið úr hverjum flokki fer hann í sérstaka hillu og annar er tekinn inn í stofu.
Aðspurður um hversu miklum tíma hann eyði í spilun þá segir Maxim Dane það vera mismunandi. Hann er í föstu sambandi og 100% vinnu. Hann spilar aldrei á vinnutíma þrátt fyrir að margir haldi að svo sé. Þegar hann er ekki hjá kærustunni þá spilar hann oftast frá 18 á kvöldin til tvö á næturna. Hann mætir í vinnu klukkan níu á morgnana og því nær hann góðum svefni. Önnur áhugamál Maxim Dane eru ferðalög en hann ferðast mikið erlendis bæði vegna vinnu sinnar og á eigin vegum. Hann hefur t.d. farið oft á E3 leikjasýninguna í Bandaríkjunum. Aðspurður um hvort hann hafi gaman af því að horfa á kvikmyndir og sjónvarpsþætti segir Maxim að honum finnst það vera tímasóun. ,,Margir segja að tölvuleikjaspilun sé tímasóun en þetta er í raun sitthvor hliðin á sama teningnum".
Maxim er á sinni þriðju Xbox 360 vél og hefur aldrei upplifað ,,Ring-of-Death". ,,Vélarnar hafa hætt að lesa diskana" segir hann. Xbox 360 vélin hans situr þó mjög þröngt í sjónvarpsskápnum sá undirritaður glögglega og ótrúlegt þykir honum að vélarnar skuli ekki hafa séð hinn margumtalaða ,,Ring-of-Death" sem margir íslenskir Xbox 360 hafa því miður séð.
Á vinalista Maxim Dane á Xbox Live eru aðeins 15 Íslendingar og eru það einungis einstaklingar sem hann þekkir persónulega. Alls eru þó 85 leikmenn alls á vinalistanum sem hann spilar við í hinum og þessum leikjum. Hann segist fá um 15-20 umsóknir um að samþykkja nýja menn inn á vinalistann sinn daglega sem hann segist halda að tengist leikjastigunum sínum. Hann fær ennfremur mikið af skilaboðum þar sem honum er boðið í hinar og þessar keppnir á Netinu sem hann hefur mjög takmarkaðann áhuga á. Maxim er ekki neinum Clans (liðum) á Xbox Live. Hann spilar aðallega með tveimur útlendingum, Breta og Kana. Bretanum kynntist í Splinter Cell og Kananum í Hour of Victory ,,af öllum leikjum" segir Maxim Dane og hlær.
Maxim Dane er mjög duglegur við að spila Xbox Live Arcade og það sem heillar hann mest eru fornfrægir ,,Coin-op" leikir sem hann hefur fyrri reynslu af frá því í gamla daga.
Maxim Dane er mjög ánægður með www.xbox.is og Íslenska Xbox Samfélagið sem sprottið hefur upp í kringum Xbox 360 hérlendis þrátt fyrir akkúrat enga markaðssetningu Microsoft og finnst honum ótrúlegt hversu ötulir menn hafa verið alla þá tíð að leggja fram vinnu sína til þess að hjálpa öðrum og mynda ný tengsl í kringum vélina.
Undirritaður rekur augun í Playstation 3 vélina sem Maxim Dane á og spyr hvað honum finnst um vélina. ,,Þetta er fínn Blu-Ray spilari" segir hann og brosir.
Við ræðum örlítið miðnætursölu á Halo 3 sem fyrirhuguð er í mánuðinum og segir Maxim allt vera á góðri leið með það.
Undirritaður sér að Maxim Dane átti að spila leik í Rainbow Six Vegas og því kveð ég hann með þökkum þar sem hann grípur um stýripinnan og höfuðtólið...Connection LOST.