Welcome to xbox360.is
![]() |
|
| Guest Message by DevFuse | |
Skilmálar xbox360.is
Reglur xbox360.is eru mjög strangar og ritskoðun er með sama hætti. Þetta er nauðsynlegt vegna stærðar þessa samfélags. Það er mjög mikilvægt að þú kynnir þér eftirfarandi atriði. Þetta eru mikilvæg atriði sem þú skalt ekki gera hér á svæðinu.
Ekki vera dónalegur eða fara með meiðyrði. Skilaboð sem innihalda árás á kynþætti, trúarbrögð, fötlun eða kynhneigð verða ritskoðuð mjög snögglega. Hið síðasta er mjög mikilvægt því ef þú notar orð eins og ,,gay", ,,hommalegt", eða ,,homó" eða eitthvað sambærilegt til þess að móðga á einhvern hátt (jafnvel með því að nota slíkt á dauða hluti) þá er litið á það mjög slæmum augum. Ef notaður er lífstíll einhvers til þess að móðga er það móðgun við þá og verður ekki liðið.
Ekki blóta. Ef þú getur ekki komið skoðunum þínum á framfæri án þess að nota fjögurra stafa orð þá þarftu að blokka þau út sbr "****". Endingar eru liðnar sbr "****ing" en ekkert annað. Ef þú veist ekki hvort ákveðið orð sé bannað þá mun kerfið láta þig vita. Á xbox360.is er sjálfvirkt ritskoðunarkerfi.
Ekki spyrja um eða bjóða öðrum sjóræningjaútgáfur af tölvuleikjum, tónlist, myndböndum eða öðru efni sem verndað er með höfundarrétti. Ef það sem þú ert að gera er brot á höfunarréttalögum þá ertu að brjóta gegn reglum samfélagsins. Meðlimum er frjálst að ræða um ,,emulators" og modd-kubba en ef þú stofnar til umræðu um dreifingu sjóræningjahugbúnaðar þá ættu hættu á ritskoðun.
Ekki efna til rifrildis. Að koma inn á spjallvef og fá fólk upp á móti þér og móðga er alveg jafn slæmt eins og móðga sjálfan þig. Ef svo vill til að þú hatir ákveðinn leik, leikjatölvu eða tegund leikja og þú tilkynnir það á vefnum til þess eina að fá fólk upp á móti þér áttu í hættu á ritskoðun.
Haltu þig við umræðuefnið. Ekki víkja út fyrir efni þess þráðar sem þú póstar í. Efni þráðar er ávalt fyrirsögn hans og efni í fyrsta pósti. Ritskoðun gætir hvívetna á spjallborðinu nema Koníakstofunni þar sem öll umræða er frjáls. Umræður í Koníakstofunni mega þó ekki brjóta í bága við aðrar reglur.
Ekki vekja upp gamla þræði. Það er tilgangslaust að pósta í þræði þar sem síðasta umræða var fyrir 60 dögum eða meira. Ef þú vekur upp gamla þræði án þess að eitthvað bitastætt komi fram í pósti þínum verður þú ritskoðaður.
Ekki eyðileggja leikjareynslu fyrir öðrum. Að ræða hvernig aðalpersónan deyr þegar leikurinn er hálfnaður er álitið vera "spoiler" og þú þarft að merkja póstinn þinn sem slíkann svo fólk sem ekki vill vita um framvindu leiksins les ekki póstinn þinn fyrir slysni. Svona merkir þú spoiler:
Ekki auglýsa. Ef þú vilt koma persónulegum skilaboðum á framfæri, svo sem að fá fólk til þess að heimsækja heimasíðuna þína settu þá slóðina í undirskrift þína. Ef þú stofnar þráð þar sem þú biður fólk um að koma á heimasíðuna þína þá ertu að pósta SPAM og þú verður ritskoðaður. Óheimilt er að auglýsa fyrir fyrirtæki í undirskriftum sínum og meta ritstjórar það hverju sinni. Undirskriftinni hér á spjallsvæðinu er ætlað að sýna upplýsingar um gamertaggið þitt á Xbox Live og upplýsingar um þá leiki sem þú ert að spila.
Það eru fleiri reglur hér fyrir neðan og það er ráðlagt að þú kynnir þér þær. Þær eru með fyrirvara um að stjórn xbox360.is breyti þeim fyrirvaralaust.
En hvað með málfrelsi? Má ég ekki pósta hverju sem ég vil?
Þegar þú skráir þig á xbox360.is þá ertu sjálfviljugur að samþykkja þessar reglur. "Málfrelsi" á aðeins við um ríkisstjórn Íslands en ekki vefsetur í einkarekstri og þú afsalar þér þeim rétti þegar ert meðlimur hér. Ef þér vefst fyrir hvort þú getir fylgt þessum reglum þá er þér frjálst að opna þitt eigið spjallborð, sem þú greiðir fyrir og setur þínar eigin reglur.
Hvernig fer ég að?
Ef þú áttar þig ekki á því hvernig þú átt að gera eitthvað eða ef það er eitthvað sem þú skilur ekki lestu þá aðstoðina sem þú finnur í valmyndinni á forsíðunni. Aðstoðin ætti að útskýra nánast allt. Ef þú ert enn í vafa prufaðu þá að spyrja spurninga inni á Spurningar og Svör svæðinu. Þar eru menn fljótir að koma þér til aðstoðar.
Almennar reglur vegna notkunar vefseturs xbox360.is og ÍXS (Íslenska Xbox Samfélagið www.xbox360.is)
A. Allir skráðir notendur xbox360.is samþykkja með notkun xbox360.is neðangreinda skilmála og reglur.
B. Stjórnendur áskila sér rétt til þess að bæta við, taka út eða laga til skilamálana án fyrirvara hvenær sem er.
C. Notendur með Gamertag á Xbox Live eru vinsamlegast beðnir um að skrá það í prófíl hjá sér og eins tilkynna DOT COM það svo hann geti bætt nýjum notendum inn á Íslenska leikmannalistann.
1. Skilmálar þessir gilda fyrir alla notkun á vefsetri xbox360.is í hverri mynd sem hún kann að vera. Þeir kunna að vera endurskoðaðir án fyrirvara ef þörf krefur.
2. Ef skilmálar þessir eru brotnir getur það valdið tafarlausu banni án fyrirvara.
3. Stjórnendur munu eftir fremsta megni tryggja öryggi og trúnað samfélagsmanna og þeirra gagna sem þeir kunna að geyma á xbox360.is.
4. Stjórnendur bera þó hvorki ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast af notkun né ef ekki er hægt að nota þjónustuna af einhverjum ástæðum.
5. Stjórnendur bera ekki ábyrgð á umræðum sem kunna að tapast eða skemmast sem geymd eru á xbox360.is.
6. Haga skal notkun í samræmi við góða siði og umgengnisreglur sem almennt eru viðurkenndar á Internetinu. Ærumeiðingar, tilhæfulausar ásakanir og árásir á aðra notendur eru ekki liðnar. Fólk sem hefur það eina markmið að koma af stað rifrildum, eru ekki umbornir. Stjórnendur meta hegðun hverju sinni. Notendur eru hvattir til að velja "report this post" ef þeir sjá eitthvað sem brýtur á bága við þetta.
7. Óheimilt er að nota aðgang annarra. Þar með talið er óheimilt að lána óviðkomandi aðgangsorð, reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð annarra eða nota á annan hátt gögn eða samskipti sem tilheyra öðrum.
8. Óheimilt er að nota aðganginn til að að brjótast eða að reyna að brjótast inn í tölvukerfi eða tölvunet annarra eða til að valda tjóni á búnaði eða gögnum. Stjórnendur bera ekki ábyrgð á því tjóni sem slíkt kann að valda.
9. Óheimilt er að trufla samskipti eða valda óeðlilegu álagi á tengingum annarra. Óumbeðnar fjöldasendingar eru með öllu óheimilar.
10. Óheimilt er að birta efni á vefsetri ÍXS sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennt velsæmi, þar með talið ærumeiðandi efni. Notendur eru beðnir um að velja "report this post" ef þeir sjá eitthvað sem brýtur á bága við þetta.
11. ÍXS áskilur sér rétt til að ákvarða hvort tiltekin samskipti teljast brjóta í bága við þessar reglur.
12. ATH SÉRSTAKLEGA: Umræður um skrifuð eintök af leikjum eða annað sem tengist ólöglegri afritun og notkun leikja er með öllu óheimil hér á www.xbox360.is. Ritstjórar munu undantekningalaust eyða póstum um þessa hluti. Þetta er eina viðvörunin sem þið fáið.
13. xbox360.is er rekið sem samfélag áhugamanna um Xbox og Xbox 360 auk annara tengdra tæknimála. xbox360.is er rekið af sjálfboðaliðum sem studdir eru af fyrirtækjum.
14. Stjórnendur taka við kvörtunum hvenær sem er sólarhringsins og skulu þær berast sem PM (private message). Stjórnendur taka einnig við hrósum.
15. Report Post er alls ekki til þess að svara póstum heldur en hann til þess að tilkynna stjórnendum að skilmálar xbox360.is hafa verið brotnir. Ógætileg notkun á "Report Post" varðar við refsingu (t.d. banni í nokkra daga).
16. Fyrirtækjum og stofnunum er með öllu óheimilt að birta í hvers konar formi auglýsingar eða ábendingar um vörur sínar á www.xbox360.is án þess að setja sig í samband við stjórnendur.
17. Notandi á xbox360.is er persónulega ábyrgur fyrir öllu efni sem hann birtir á spjallinu og öllum umræðum sem hann sendir inn. Stjórnendur, ritstjórar og Netsamskipti (bakhjarlar xbox360.is) geta ekki undir neinum kringumstæðum borið ábyrgð á orðum og athöfnum notenda.
18. Notanda á xbox360.is er bent á að sækja sér undirskrift af gamertag sínu á http://www.mygamercard net. Leiðbeiningar um hvernig skal fara að því er að finna undir aðstoðinni. Eins er óskað eftir því að notendur setji inn gamertag sitt í profile til að auðvelda stjórnendum að bæta inn á íslenska leikmannalistann. Óæskilegt er að menn séu með plássfrekar undirskriftir sem tengjast ekki efni vefsins.
19. Stjórnendur xbox360.is geta veitt aðvörun ef um SPAM er að ræða og meta þeir það hverju sinni ef um slíkt er að ræða. SPAM er t.d. óþörf svör til að hækka fjölda innsendra pósta, heimildarlausar staðhæfingar og ábendingar á aðrar síður sem ekki tengjast málefnum ÍXS osfrv. Undantekning er XBOT RSS sem sér um að færa okkur fréttir frá öðrum erlendum vefsíðum tengt málefnum Xbox 360.
20. Stjórnendur og ritstjórar síðunnar leggja mikinn frítíma og fjármagn (úr sínum eigin vasa) í síðuna. Gerast notendur uppvísir af því að grafa undan starfi þeirra á síðunni leiðir það til banns frá síðunni án undantekninga.
21. Notendur skulu ekki vekja upp þræði sem staðið hafa óvirkir í meira en 30 daga nema þess sé getið til um sérstaklega (festir þræðir efst í hverju spjallborði).
Síðast uppfært 25.07.09 af DOT COM.
Reglur Kauphallarinnar
1. Hér skal einungis fara fram sala, kaup og skipti á vörum tengdum efni síðunnar - Bannað er með öllu að auglýsa til sölu eða til kaupa moddaðar Xbox 360 vélar og skrifaða leiki.
2. Hvorki stjórnendur þessa spjallsvæðis né styrktaraðilar bera nokkra ábyrgð á viðskiptum sem fara fram hér í Kauphöllinni.
- Viðskiptaaðilar (kaupendur og seljendur) bera alfarið ábyrgð á sínum viðskiptum.
3. Komi upp ágreiningur er það á ábyrgð viðskiptaaðila að leysa úr honum. - Það er EKKI í verkahring stjórnenda þessa spjallsvæðis að aðstoða seljendur við að innheimta fé frá kaupendum sem hafa svikist undan borgun. - Þetta á einnig við ef varan er ekki afhent í umtöluðu ástandi við kaup eða skipti.
4. Eftirfarandi grundvallarupplýsingar skulu koma fram í auglýsingu:
Titill skal vera skýr og skilmerkilegur, "Til sölu/Óska eftir: (nafn vöru)" en ekki "Xbox leikur til sölu!/Langar í einn leik!". Ef um er að ræða langan lista af vörum gengur slíkt að sjálfsögðu ekki, í þeim tilvikum er nægilegt að skrifa "Til sölu: Ýmsir Xbox 360 leikir" eða "Sölu- og kaupþráður Jóns" sem dæmi.
Tekið skal vel fram hvort viðkomandi (seljandi sem kaupandi) hafi ákveðna verðhugmynd eða óski eftir tilboðum. Einnig skal tekið fram hvernig viðkomandi vill láta hafa samband við sig (sími, skilaboð, svara í þræðinum) og skulu áhugasamir halda sig við aðferð/aðferðir sem auglýsandi tekur fram. Ennfremur skal tekið fram hvernig afhending vörunnar fer fram (sótt, hittast á ákveðnum stað eða sent).
Ástand vörunnar, hversu gömul og/eða mikið notuð hún er. Það skiptir að sjálfsögðu máli þegar kemur að sanngjörnu verði.
Ef um er að ræða fleiri en eina vöru er æskilegt að þráðurinn sé reglulega uppfærður svo áhugasamir geti fylgst með því hvaða vörur seljandi á enn til/hvaða vörur kaupanda vantar enn/hvaða vörum hefur ekki verið skipt.
5. Einungis áhugasamir skulu senda inn svar við auglýsingu (sé þess getið í auglýsingu að svör í þræðinum séu leyfð). - Engin óþarfa skítköst eða athugasemdir eru leyfðar. - T.d. að þú vitir um náunga sem er að selja vöruna ódýrar eða að ákveðinn leikur sé ömurlegur.
6. Þegar viðkomandi hefur lokið sínum viðskiptum að sinni skal breyta (e. modify) titli þráðarins og bæta við [SELT] fremst. - Þá geta stjórnendur lokað/eytt þræðinum svo ekki sé verið að endurvekja hann að óþörfu.
7. Öll sala á ólöglegum varningi, stolnum varningi er með öllu óheimil og varðar við lög.
8. Óheimilt er að ýta söluþráðum upp spjallborðin nema á 48 klukkustunda fresti.
Brot á þessum reglum getur leitt til þess að þræðinum sé læst/eytt og viðkomandi notandi áminntur. Síendurtekin brot geta haft í för með sér tímabundið bann eða jafnvel bann til lífstíðar. Á þetta bæði við auglýsendur og þá sem sýna auglýsingunni áhuga. Við tökum fram að allar innsettar færslur eru ip loggaðar.
Ath. Spjallborð er t.d. "X360 Almennt". Undirspjallborð er t.d. "Nintendo" (undir T3CH). Spjallsvæði merkir aftur á móti allt svæðið í heild sinni (Spjallvefur Xbox360.is).
Síðast uppfært 25.07.09 af DOT COM.
ATHUGIÐ: Gagnagrunnar sem halda utan um notendur eru samtengdir á eftirfarandi vefsíðum: Xbox360.is, GHz.is, eSports.is og PSX.is. Það er því ekki nauðsynlegt að skrá nýjan aðgang hér ef þú ert skráð(ur) á einhverjum af þessum síðum, nóg er að skrá sig inn.

CODE
Spoiler

Innskrá
Skráning
Hjálp